Velkomin á Ungt fólk og lýðheilsu 2025
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa fer fram dagana 19. - 21. september 2025 að Reykjum í Hrútafirði. Umfjöllunarefni ráðstefnunnar eru FÉLAGSLEGIR TÖFRAR. Töfrarnir vísa til mikilvægra en ósýnilegra gilda sem myndast í samskiptum og samveru fólks. Þeir móta hugmyndir, hegðun og sjálfsmynd fólks. Draga fólk hvert að öðru, gerir hóp að liði og samfélag að samfélagi.
Ráðstefnan hefur það markmið að hvetja ungt fólk til þátttöku í félagsstarfi íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar á nýjan hátt, ekki aðeins með því að mæta á hefðbundar íþróttaæfingar. Þátttaka getur falið í sér að sitja í stjórn deildar eða félags, taka þátt í fjölbreyttu nefndarstarfi, aðstoða við fjáröflun, dómgæslu og/eða koma að móta- og viðburðahaldi. Með öðrum orðum er markmið viðburðarins að efla og viðhalda félagslegum töfrum ungs fólks - efla og styrkja félagslega heilsu þess. Að auki felur viðburðurinn í sér hellings hópefli, líkamlega hreyfingu og afþreyingu. Viðburðurinn tekur því á öllum hliðum lýðheilsu, þ.e. líkamlegri-, andlegri- og félagslegri heilsu.
Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Hellings hópefli og samvera. Kynningar með mögnuðum fróðleik. Uppörvandi og hvetjandi vinnustofur, samtal við ráðamenn, kvöldvökur og önnur skemmtilegheit.
Takmarkaður fjöldi
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður svo það borgar sig að bíða ekki of lengi með skráningu. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum sem þátttakendur eru hvattir til þess að nýta sér. Fyrir þau sem ekki geta nýtt sér rútuna er hægt að sækja um styrk fyrir ferðakostnaði til UMFÍ. Skila þarf inn kvittunum á sérstöku eyðublaði sem sent verður út eftir viðburðinn.
Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus, á það einnig við um rafsígarettur og nikótínpúða.
Skráning
Ekki þarf að vera í ungmennaráði eða ákveðnu félagi til þess að koma. Ráðstefnan er fyrir öll ungmenni á aldrinum 15 - 25 ára. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja ungmennum undir 18 ára aldri.
