HK leitar að nýjum framkvæmdastjóra
Handknattleiksfélag Kópavogs (HK) auglýsir starf framkvæmdastjóra félagsins. Nýr framkvæmdastjóri mun taka við starfinu af Söndru Sigurðardóttur, sem var á dögunum ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og tekur við því starfi á næstu vikum.
Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2025.
Í auglýsingu HK segir að leitað sé að öflugum stjórnanda og leiðtoga til leiða starf félagsins, bæði starfsmenn og sjálfboðaliða. Framkvæmdastjóri beri ábyrgð á daglegum rekstri félagsins, fjármálum og mannvirkjum ásamt því að bera ábyrgð á stefnumótun og framfylgd hennar.
Þetta er krefjandi og fjölbreytt starf þar sem reynir á leiðtogahæfileika framkvæmdastjórans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á allri starfsemi félagsins, mannauðsmálum, rekstri deilda og fjármál.
- Leiða tekjuöflun félagsins í samstarfi við deildarstjórnir og aðalstjórn.
- Stefnumótun, gerð rekstraráætlana og eftirfylgni með þeim.
- Innleiðing stefnu, eftirfylgni með henni og ákvörðunum aðalstjórnar.
- Markmiðasetning og eftirfylgni.
- Efla félagsandann og vinna að uppbyggingu félagsins.
- Leiða samskipti við deildarstjórnir og sjálfboðaliða félagsins.
- Samskipti við sérsambönd og opinbera aðila.
- Umsjón stjórnarfunda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi eða umfangsmikil reynsla af sambærilegu starfi.
- Mikil hæfni í samskiptum og sterk leiðtoga- og skipulagshæfni.
- Hefur góða innsýn í og reynslu af stjórnun, rekstri og fjármálum.
- Frumkvæði, áræðni og jákvætt viðhorf.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Reynsla og þekking á íþróttastarfsemi og rekstri innan íþróttahreyfingarinnar er stór kostur.
UM Handknattleiksfélag Kópavogs (HK)
HK er íþróttafélag sem hefur innan sinna raða knattspyrnudeild, handknattleiksdeild og blak ásamt dansdeild, borðtennisdeild og bandýdeild. HK hefur yfir að ráða framúrskarandi aðstöðu, bæði knatthús innandyra og tvöfaldan handboltavöll. Framundan eru spennandi verkefni á sviði stefnumótunar og þróun íþróttastarfsins ásamt uppbyggingu stúku á félagssvæði félagsins við Kórinn sem framkvæmdastjóri mun leiða í samstarfi við aðalstjórn félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, formaður aðalstjórnar HK, á netfanginu arnina@hk.is.
Sótt er um starfið í gegnum Alfreð.
Myndin með umfjölluninni er tekin af einu af sumarnámskeiðum HK.