Fara á efnissvæði
28. júní 2025

Samherjar í leik og starfi

Þeir Valtýr Sigurðsson og Jón H. B. Snorrason voru á meðal gesta á setningu Landsmóts UMFÍ 50+ á Siglufirði í gærkvöldi. Valtýr er fyrrverandi forstjóri Fangelsismálastofnunar og fyrrum ríkissaksóknari, og Jón var aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um svipað leyti. 

Jón hætti störfum í byrjun árs 2007 en Valtýr var forstjóri Fangelsismálastofnunar á árunum 2004 til 2008 og ríkissaksóknari til 2011. 

Þetta er í fyrsta sinn sem Valtýr tekur þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ og er skráður í nokkrar greinar í frjálsum íþróttum. Jón keppir ekki í neinu. Báðir eiga þeir íverustaði í Fjallabyggð.

Fjölmenni er á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Fjallabyggð um helgina. Mótið hófst í gær á Siglufirði en færðust keppnisgreinar að mestu yfir til Ólafsfjarðar í dag. Rúmlega 350 þátttakendur eru skráðir til leiks á mótinu í fjölmörgum greinum, svo sem í ringó, boccía, pílukasti og pokavarpi, bridge, frjálsum í þróttum og mörgum fleirum. Fjöldi greina er opinn fyrir fólk á öllum aldri, svo sem götuhlaup, sem fór fram í gær.

Gestir og gangandi gátu prófað ýmsar greinar í dag, svo sem bogfimi, borðtennis og fleira.

Í kvöld verður svo matar- og skemmtikvöld á veitingastaðnum Rauðku á Siglufirði, það er eftirsóttur viðburður sem margir bíða eftir.