Svæðisfulltrúa leitað fyrir höfuðborgarsvæðið

ÍSÍ og UMFÍ leita að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi á Íslandi til að ganga til liðs við teymi svæðisfulltrúa sem starfa víða um landið. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir áhugasaman einstakling til að taka virkan þátt í að byggja upp öflugt íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu og verða hluti af frábæru teymi á landsvísu.
Sextán svæðisfulltrúar eru staðsettir á átta svæðastöðvum víðs vegar um landið og eru þeir tveir á hverri stöð. Þeir starfa sem ein liðsheild þar sem styrkleikar og hæfileikar hvers og eins fá að njóta sín í nánu samstarfi við hvert annað og við íþróttahreyfinguna í heild.
Tveir svæðisfulltrúar verða á höfuðborgarsvæðinu og er verið að leita að öðrum þeirra. Hinn svæðisfulltrúinn sem fyrir er, er Hansína Þóra Gunnarsdóttir.
Umsóknarfrestur er til 2. maí og er hægt að sækja um hér.
Helstu verkefni svæðisstöðva
- Samstarf, samskipti og stuðningur við íþróttahéruð og aðildarfélög.
- Samstarf og samskipti við opinbera aðila varðandi stuðning og þjónustu íþróttafélaga um allt land.
- Vinnsla verkefna sem tengjast aukinni þátttöku barna í íþróttum og farsæld.
- Verkefnisstjórnun og vinna að nýsköpunarverkefnum.
- Mótaskipulag og eftirfylgni tengt fræðslumálum íþróttahéraða.
- Fræðsla og kynning til íþróttahéraða og aðildarfélaga í ýmsum málum.
- Samræming málaflokka, stjórnarhátta, verkferla, öryggis- og viðbragðsáætlana.
- Koma upp og viðhalda leiðbeiningum og viðmiðum fyrir stjórnun íþróttahéraða og stjórnendur íþróttafélaga.
- Yfirlit og eftirfylgni með lögbundnum skyldum íþróttahéraða og aðildarfélaga.
- Umsjón og þátttaka í samráði og á samræmingarfundum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingum með fjölbreytta þekkingu til að gegna ofangreindum verkefnum.
- Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Styrkleiki og reynsla á eftirfarandi sviðum er kostur:
- Verkefnastjórnun, mótun ferla, fræðsla og miðlun upplýsinga.
Til viðbótar er mikilvægt að umsækjendur búi yfir frumkvæði, séu sjálfstæðir, geti unnið í teymi, miðlað upplýsingum munnlega og skriflega, unnið skipulega, haft góða samskiptahæfileika og getu til að ná árangri í mjög fjölbreyttu umhverfi. Umsækjendur þurfa að sjálfsögðu að hafa hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.
Um verkefnið
ÍSÍ og UMFÍ standa að verkefninu og hafa auk þess fengið stuðning frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samtökin hafa undirritað samning um eflingu íþróttastarfs á landsvísu með því að koma á fót svæðastöðvum og hvatasjóði. Svæðastöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.Búið er að skipta öllu landinu upp í átta svæði þar sem á hverju svæði verður unnið í samvinnu við íþróttahéruð, aðildarfélög íþróttahreyfingarinnar og opinberum aðilum að markmiðum samningsins og stefnu ríkisins og íþróttahreyfingarinnar í íþróttamálum.
Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðu isi.is og umfi.is.
