Tvö námskeið Æskulýðsvettvangsins í febrúar
Skráning er opin á námskeið Æskulýðsvettvangsins þetta misserið.
Næstu námskeið eru:
- Verndum þau staðnámskeið (23.02) - Upplýsingar á Facebook
- Samskipti og siðareglur netnámskeið (25.02) - Upplýsingar á Facebook
- Verndum þau: Akureyri 28. maí.
Ítarlegri upplýsingar um námskeið er hér.
Námskeiðið Verndum þau
Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og ungmennum og öðrum áhugasömum.
Ítarlegri upplýsingar um námskeiðið
Námskeið í samskiptum og siðareglum
Markmiðið með námskeiðinu er að kynna siðareglurnar fyrir starfsfólki og sjálfboðaliðum innan félagasamtakanna og innleiða starfshætti í anda þeirra hjá hverjum og einum, sem og félagasamtökum í heild sinni. Tilgangurinn með því er að stuðla að heilbrigðu, uppbyggjandi, vönduðu og öruggu umhverfi fyrir allt fólk í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Ítarlegri upplýsingar um námskeiðið
Þetta er Æskulýðsvettvangurinn
Æskulýðsvettvangurinn vinnur að fræðslu- og forvarnarmálum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Hann er samstarfsvettvangur UMFÍ, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Á vefsvæði Æskulýðsvettvangsins er viðbragðsáætlun, sem nýtist þegar atvik koma upp í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Þar á meðal eru ráðleggingar varðandi áföll sem börn, ungmenni og ábyrgðaraðilar verða fyrir í starfi og utan þess.
Upplýsingar um fleiri námskeið vorið 2026 má sjá hér.