Ungmennafélagsandinn aldrei mikilvægari en í dag

Í apríl voru liðin tíu ár frá því Auður Inga Þorsteinsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra UMFÍ. Hún er fyrsta konan sem gegnir því starfi. Glerþakið hafði verið brotið fjórum árum fyrr þegar Helga Guðrún Guðjónsdóttir varð fyrsta konan til að setjast í stól formanns UMFÍ.
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hefur gengið í gegnum miklar breytingar síðastliðin ár. Fyrir rúmum áratug var þjóðfélagið að skríða upp úr djúpum öldudal fjármála- og gengishruns. Því fylgdi tilvistarkreppa í samfélaginu sem einkenndist af vantrausti og tortryggni. Um svipað leyti og landið var að rétta úr kútnum vann þáverandi stjórn og starfsfólk UMFÍ að stefnumótun til að skilgreina framtíðarsýn og hlutverk. Á sama tíma var Auður Inga Þorsteinsdóttir ráðin í starf framkvæmdastjóra UMFÍ. Þetta var á vordögum ársins 2015. Þar tók hún við af Sæmundi Runólfssyni, sem sinnt hafði starfinu í 23 ár.
Auður hafði þá verið framkvæmdastjóri Íþróttafélagsins Gerplu í Kópavogi í 10 ár, eins af aðildarfélögum Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK).
Auður segir stefnumótunarstarf UMFÍ hafa borið með sér að miklar breytingar þyrftu að eiga sér stað enda hafði samfélagið allt farið á hliðina í hruninu. Eins höfðu verið átök innan UMFÍ sem fylgdu fjármálum og hruninu. Margt hafði verið gert í rekstri UMFÍ og skerpt á áherslum, svo sem með sölu á Þrastalundi í Þrastaskógi, starfsemi sem hafi fylgt UMFÍ með einum eða öðrum hætti frá upphafsdögum 20. aldar.
„Það var alveg ljóst af niðurstöðum stefnumótunarvinnunnar að við þurftum að ráðast í miklar breytingar. Við, eins og fleiri, þurftum að byggja upp traust á ný innan hreyfingarinnar, breyta viðhorfum og sérstaklega að auka samstarf og samvinnu á meðal sambandsaðila og aðildarfélaga UMFÍ,“ segir Auður.
Mynd: Á myndinni hér að neðan má sjá Auði með þeim Ragnhildi Skúladóttur og Líney Rut Halldórsdóttur, frá ÍSÍ, og Margréti Lilju Guðmundsdóttir, frá Rannsóknum og greiningu, þegar niðurstöður Ánægjuvogarinnar voru kynntar.

Leiðin að UMFÍ
Auður segir það hafa verið áhugavert að verða framkvæmdastjóri UMFÍ enda í raun alist upp innan hreyfingarinnar.
„Leið mín að þessari stöðu var fjölbreytt og spannar bæði íþróttaiðkun, þjálfun og stjórnun. Ég hef verið iðkandi, keppandi, þjálfari, yfirþjálfari og sjálfboðaliði áður en ég fór yfir í stjórnun í íþróttahreyfingunni. Ég ólst upp í Breiðholti en æfði fimleika hjá Gerplu í Kópavogi og keppti í nafni félagsins í mörg ár. Reyndar bjuggum við svo í fimm ár í í Noregi þar sem ég þjálfaði hjá norsku félagi og var sjálfboðaliði norska fimleikasambandsins, tók þátt í nefndum þess og ráðum. Þegar við fluttum heim aftur fylgdu með okkur í farteskinu margar nýjar hugmyndir og leiðir sem ég hafði kynnst úti,“ segir hún.
Auður og fjölskylda hennar fluttu heim til Íslands árið 2006. Auður tók við starfi framkvæmdastjóra Gerplu. Félagið var í erfiðri fjárhagsstöðu og gekk erfiðlega að greiða starfsfólki laun um hver mánaðamót. Á sama tíma voru iðkendur 400 talsins.
Auður, ásamt öflugu teymi úr Auður segir að þegar hún horfði síðar í baksýnisspegilinn á árin hjá Gerplu hafi hún verið undir viðstöðulausu álagi:
„Eftir á að hyggja er upplifun mín sú að við vorum stanslaust að slökkva elda, enda vöxturinn og verkefnin nánast endalaus. En þetta mótaði mig sem stjórnanda. Öll vinnan kenndi mér mikilvægi góðrar teymisvinnu, stefnumótunar og lausnamiðaðrar hugsunar,” segir hún og bætir við að reynslan hafi nýst vel þegar hún steig upp frá skrifborðinu hjá Gerplu til að taka við starfi framkvæmdastjóra UMFÍ árið 2015. Það var allt öðruvísi starf.
Mynd: Auður ásamt Heiðu Björg Hilmisdóttur, þáverandi formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga og nú borgarstjóra í Reykjavík, Ásmundi Einari Daðasyni, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra og Lárusi Blöndal, þá forseta ÍSÍ, á ráðstefnunni Vinnum gullið síðla árs 2023 þar sem kynnt var ný stefna í afreksmálum á Íslandi.

Gamalgróið samband með sögu
Gerpla er aðildarfélag Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK), sem er einn af sambandsaðilum UMFÍ. Auður viðurkennir að þótt hún hafi bæði æft og unnið innan aðildarfélags UMFÍ frá bernsku til fullorðinsára þá hafi hún lítið fundið fyrir tilvist þess á sama tíma.
„Þegar ég starfaði í Gerplu fann ég lítið fyrir stuðningi UMFÍ. Við fengum reyndar ferðastyrki frá UMSK og ég hafði sem iðkandi keppt á Landsmótum UMFÍ. En þess utan varð ég lítið vör við það,“ viðurkennir hún og lýsir því að þegar hún hóf störf sem framkvæmdastjóri sambandsins hafi hún skynjað tortryggni í garð hreyfingarinnar.
„Þegar ég sótti um starfið hjá UMFÍ var auglýsingin mjög skýr um hæfniskröfur. Það kom mér skemmtilega á óvart að ég gat hakað í öll þau box sem æskileg voru, sem varð til þess að ég sótti um. Ég er enn þann dag í dag ekki viss um að ég hefði sótt um starfið hefði ég ekki getað merkt við alla þættina,“ segir hún og heldur áfram:
„Mín upplifun á tengslum við hreyfinguna hefur verið mótandi í starfinu í dag og sem betur fer var hún á sama veg og niðurstöður um áherslur úr stefnumótuninni. Það felst í því að hvetja til samvinnu þar sem hægt er. Í staðinn fyrir að horfa á hagsmunaárekstra sem hindrun og þröskulda í samstarfi sáum við tækifæri til að samræma stefnu og samstarf til að styrkja íslenskt íþróttalíf í heild sinni. Af því að samvinna skilar árangri fyrir okkur öll.“
Auður og stjórn UMFÍ vildu breyta viðhorfinu innan UMFÍ og til hreyf- ingarinnar sjálfrar en setja líka skýrari markmið og innleiða markvissari vinnubrögð.
„Við jukum gegnsæi og öll samskipti urðu opnari en áður. Við vildum líka verða enn markvissari í kjarnastarfseminni, efla grasrótarstarf sambandsaðila og aðildarfélaga bæði í formi verkefna og úrræða sem myndu auðvelda þeim rekstur og þróun starfsins innan íþróttahreyfing- arinnar. Á sama tíma voru stórar ákvarðanir teknar á vettvangi hreyfingarinnar varðandi aðild allra íþróttahéraða að UMFÍ. Það hefur mikil jákvæð áhrif á þann veg að öll félög geta verið aðilar að UMFÍ. Eftir þá ákvörðun á þingi UMFÍ fannst mér hljóð og mynd fara saman að því leyti að UMFÍ væri landssamtök fyrir öll félög, óháð staðsetningu þeirra. Ég hef þá tilfinningu að þegar þessir og fleiri þættir hafi púslast saman þá hafi stöðunni verið snúið við. Það hefur tekist af því að ég skynja fleiri snertifleti og samskipti innan hreyfingarinnar,“ segir Auður og bendir á að eitt af mikilvægustu verkefnunum á sínum tíma hafi falist í því að setja starfsemi UMFÍ í samhengi við raunverulegar þarfir sambandsaðila og aðildarfélaga þeirra og spyrja sig reglulega um tilvist samtakanna, það er að segja, fyrir hverja UMFÍ sé til.
Vettvangur tækifæra
Stefnumótunin sem ráðist hafði verið í um það leyti sem Auður var að hefja störf hjá UMFÍ var lykill að breytingum. Auður sá að niðurstöður vinnunnar gætu nýst vel í þeim breytingum sem hún taldi nauðsynlegar á UMFÍ.
„UMFÍ hefur heillað mig vegna þess að gildin og markmiðin eru mér svo mikilvæg. Það sköpum við vettvang og tækifæri svo fleira fólk geti tekið þátt í íþróttum og félagsstarfi. Ég er alinn upp í þannig umhverfi í mínu félagi, fékk tækifæri til bæði verkefna og vaxtar. Ungmennafélagsandinn, það að bæta sjálfan sig og samfélagið um leið, hefur verið drifkraftur þessarar hreyfingar í rúm 120 ár. Hann á enn erindi í dag og eiginlega hefur hann aldrei verið mikilvægari en nú,“ segir Auður.
Nýjar áskoranir og framtíðarsýn
UMFÍ hefur gengið í gegnum miklar breytingar frá því að Auður settist í stól framkvæmdastjóra.
„Við fórum í það að brjóta upp formfestuna, einfalda og hraða allri ákvörðunartöku. Við lögðum okkur sérstaklega fram um að brjóta niður ósýnilega múra á milli bæði milli stjórnar, starfsfólks og verkefna – og kannski hreyfingarinnar í heild. Við vildum eyða því sem stundum er kallað síló, þó svo að fólk hafi haft sín ábyrgðarsvið og hlutverk. Við jukum samráð, óformleg samskipti og unnum markvisst að því að vinna og hegða okkur í samræmi við gildi UMFÍ, að treysta, gleðjast og vinna saman. Með öðrum orðum bjuggum við til öflugt lið sem spilar saman í stað þess að vera frábærir einstaklingar,“ segir Auður og bendir á að stærstu breytingarnar hafi þó verið gerðar á vettvangi þings UMFÍ; aðild Íþróttabandalaga landsins að UMFÍ, stofnun svæðastöðva íþróttahéraðanna og breyting á reglugerð við úthlutun á lottófjármunum frá Íslenskri getspá, fyrirtæki sem UMFÍ á að hluta með ÍSÍ og ÖBÍ - réttindasamtökum.
„Þessar breytingar eru grunnurinn að öflugu íþróttastarfi um allt land. Það verður þess vegna mjög spennandi að sjá stöðuna eftir nokkur ár,“ segir hún og bætir við að mörg verkefnanna hafi verið erfið og þung.
Ungmennabúðirnar á Laugum í Sælingsdal hafi sem dæmi verið fluttar til Laugarvatns. Þær hafi síðan þurft að leggja niður þegar mygla greindist í húsnæðinu. UMFÍ hafði reyndar um svipað leyti tekið við rekstri Skólabúða á Reykjum í Hrútafirði. Mótahald UMFÍ tók sömuleiðis breytingum á þessum árum. Auður segir þær hafa verið nauðsynlegar til að rjúfa kyrrstöðuna sem Landsmót UMFÍ var komið í. Til viðbótar við þetta var heilmikil breyting fólgin í flutningi á þjónustumiðstöð UMFÍ inn í íþróttamiðstöðina í Laugardal. Formleg og óformleg samskipti ÍSÍ og UMFÍ, sem höfðu aukist verulega á undanförnum árum, jukust til muna eftir flutninginn. Samstarfið á milli UMFÍ og ÍSÍ var líka enn meira en áður.
„Ég er afar stolt af því hvað UMFÍ stendur fyrir og hvar hreyfingin er stödd í dag. Enginn gerir neitt einn og ég hef notið þess að starfa með frábæru fólki, bæði stjórn og starfsfólki. Ég er líka mjög þakklát því ég hef lært svo mikið sjálf af því frábæra fólki sem ég hef fengið að starfa með. Hreyfingin hefur að mínu mati færst nær kjarnastarfseminni, styrkt tengsl sín við aðildarfélög og aukið samstarf við aðra aðila innan og utan íþróttahreyfingarinnar. Lykilatriði í þessu öllu er að horfa fram á veginn og vinna að lausnum. Við þurfum að einblína á hvað við viljum gera í stað þess að horfa til fortíðar, við verðum að nýta áskoranir og tækifæri til að bæta íþróttastarf í landinu og skapa umhverfi þar sem allir geta fundið sér stað. Það er svo mikilvægt að halda áfram að vaxa, af því að stöðnun er svo leiðinleg,“ segir Auður að lokum.
Þú getur lesið meira í Skinfaxa
Viðtalið við Auði er í Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Þú getur lesið það allt á umfi.is með því að smella á forsíðu blaðsins hér að neðan.