Sími:
Netfang:
Rakel starfar sem deildarstjóri hjá fimleikafélaginu Gerplu í Kópavogi, ásamt því að þjálfa meistaraflokk Gerplu í hópfimleikum. Hún hefur setið í varastjórn Ungmennasambands Kjalarnesþings frá febrúar 2021.
Á kjörtímabilinu 2014-2018, sat Rakel í forvarnar- og frístundanefnd Kópavogs.
Rakel hefur starfað sem fimleikaþjálfari frá árinu 2014 og komið að þjálfun barna á öllum aldri á þeim tima. Síðustu ár hefur hún lagt mikla áherslu á að fjölga iðkendum Gerplu sem eru með fötlun. Jafnframt hefur hún reynslu af verkefnastjórnun viðburða, allt frá 60 þátttakendum upp í viðburði þar sem 1500 iðkendur og 2500 áhorfendur koma að.
Rakel er með BA gráðu í lögfræði og viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu. Jafnframt hefur hún lokið diplóma í gegnum Akademias af námskeiði sem ber nafnið, leiðtogi í verkefnastjórnun.