Ragnheiður Högnadóttir sæmd gullmerki UMFÍ

Ragnheiður Högnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar UMFÍ, var sæmd gullmerki UMFÍ á sambandsþingi Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) á dögunum.
Á sama þingi tók Sunna Wiium við sem formaður USVS af Erlu Þóreyju Ólafsdóttur. Erla hafði verið formaður í eitt ár en var áður framkvæmdastjóri félagsins.
Tvö starfsmerki UMFÍ voru afhent á þinginu. Þau hlutu Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson og Sif Hauksdóttur.
Sif hætti nýverið sem formaður Ungmennafélagsins Kötlu eftir langt starf fyrir félagið. Hún hefur jafnframt verið ritari í stjórn USVS síðustu ár.
Sigurður Eyjólfur hlaut starfsmerkið fyrir framlag sitt til íþrótta- og æskulýðsstarfs í Vestur-Skaftafellssýslu. Hann sagði frá því í færslu á Facebook, að gaman er að uppskera og að síðustu mánuðir hafi svo sannarlega verið mánuðir mikillar uppskeru.
Í stjórnarstarfi frá unglingsaldri
Sigurður Óskar Jónsson, sem situr í stjórn UMFÍ, var gestur þingsins fyrir hönd UMFÍ og afhenti hann viðurkenningarnar, þar á meðal Ragnheiði gullmerkið. Hann rifjaði upp við afhendingu merkisins að Ragnheiður hafi komið inn í varastjórn UMFÍ árið 2013.
„Þá var ég að mæta á mitt annað UMFÍ þing, en hún líklega á sitt fimmtánda, en hver er svo sem að telja. Við kynntumst svo aðeins í eftirminnilegri Danmerkurferð vorið 2015, en eftir að ég kom sjálfur inn í varastjórn UMFÍ 2015 og hún tók sæti í aðalstjórn, einmitt á þingi í Vík, hafa kynni okkar aukist til muna,“ sagði Sigurður og taldi upp að Ragnheiður hefur alla tíð verið mjög virk í félagsmálum. Undanfarin ár hefur hún verið formaður framkvæmdastjórnar UMFÍ auk þess að vera varaformaður UMFÍ um tíma.
Ragnheiður sat lengi í stjórn USVS, var formaður sambandsins um margra ára skeið og einnig framkvæmdastjóri um tíma. Hún byrjaði í stjórn Ungmennafélagsins Drangs aðeins 14 ára gömul og var einnig formaður Umf. Kötlu eftir sameiningu félaganna.
Sigurður rifjaði jafnframt upp að Ragnheiður hefði sagt sér að hún hafi mætt á öll Unglingalandsmót UMFÍ frá upphafi, eða frá árinu 1992. Hún hlaut starfsmerki UMFÍ árið 2011.
„Ragnheiður er traustur ungmennafélagi og mjög greiðvikin. Hún var fyrir austan hjá mér á þriðjudaginn, í sömu erindagjörðum og ég er hér núna, og vílaði ekki fyrir sér að stýra fyrir okkur þinginu, annað árið í röð.“