Fara á efnissvæði
11. mars 2024

„Það skiptir ekki máli í hverjum hjartað er“

„Í rauninni er þetta frekar einfalt: Ef við ætlum að ná jafnrétti í íþróttum, þá þurfum við fólk með jafnréttishjarta í forystu. Svo einfalt er það. Það skiptir ekki máli í hverjum hjartað er. En það verður að vera jafnréttishjarta. Við þurfum fólk af öllum kynjum sem setur jafnréttismál á dagskrá og styðja við þau sem tala fyrir jafnrétti sem mannréttindum,“ sagði Klara Bjartmarz, sem nýhætt er sem framkvæmdastjóri Knatttspyrnusambands Íslands (KSÍ). Hún hélt kröftugt erindi á ráðstefnunni Konur og íþróttir, forysta og framtíða, sem fram fór á föstudag. 

Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) stóðu saman að ráðstefnunni í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Ráðstefnan var afar vel sótt en um 120 þátttakendur mættu á hana og um 100 manns fylgdust með í gegnum streymi. Dagskráin var þétt frá kl.09:00 til rúmlega 12:30 með mörgum áhugaverðum erindum.

Olga Bjarnadóttir, 2. varaforseti ÍSÍ, setti ráðstefnuna og var jafnframt fundarstjóri í fjarveru Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, sem situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, hélt fyrsta erindið sem fjallaði um áskoranir kvenna í forystu í íþróttum og í kjölfarið sögðu Klara Bjartmarz, fráfarandi framkvæmdastjóri KSÍ, og Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, frá sínum upplifunum í forystuhlutverkum innan sinna sérsambanda sem framkvæmdstjóri KSÍ og forseti GSÍ. Áskoranirnar voru margar sem þær lentu í, í þessum karllæga heimi, en tækifæri líka sem þær ákváðu að nýta sér.

Eftir erindin fór fram pallborðsumræður þar sem rætt var um það hvers vegna konur byðu sig ekki meira fram en raun ber vitni og hvað hægt sé að gera til að jafn hlut kvenna í stjórnum og stjórnendahlutverkum. Þátttakendur í pallborðsumræðum voru Sólveig Jóndsóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambandsins, Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, og Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA auk Klöru og Huldu en það var Ragnhildur Skúladóttir, sviðstjóri Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, sem stjórnaði pallborðsumræðunum af mikilli röggsemi.

Næsti hluti ráðstefnunnar sneri að konum í hlutverki dómara og voru það Bríet Bragadóttir, alþjóðlegur knattspyrnudómari, Erna Héðinsdóttir, alþjóðlegur lyftingadómari, og Hlín Bjarnadóttir, alþjóðlegur fimleikadómari, sem héldu erindi um sína reynslu og upplifun á svæði dómgæslunnar en áhugavert hefur þótt hvers vegna svo fáar konur sækjast eftir því að taka að sér hlutverk dómara og í raun málefni sem mörg félög og sérsambönd sem hafa reynt margt til að fjölga þeim án árangurs.

Síðasti hluti ráðstefnunnar fjallaði um bæði þjálfun kvenna og konur sem þjálfarar á afreksstigi. Hulda Mýrdal, frá Heimavellinum, reið á vaðið og sagði sína sögu af því að hvernig það hefði gengið að gefa knattspyrnukonum í atvinnumennsku sviðið í gegnum verslunina Heimavöllinn og búa til fyrirmyndir fyrir yngri leikmenn. Díana Guðjónsdóttir, handknattleiksþjálfari, fór yfir viðhorf og skrýtnar spurningar sem hún hefur fengið í gegnum tíðina vegna starfs síns sem þjálfari og Gunnar Páll Jóakimsson, frjálsíþróttaþjálfari, fór yfir helstu atriði sem honum fannst vera á þjálfun karla og kvenna. Lára Hafliðadóttir, frá stjórn Hagsmunasamtaka kvenna í knattspyrnu (HKK), hélt svo síðasta erindið.

Ráðstefnuslit voru svo í höndum Auðar Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóa UMFÍ, en hún er fyrsta konan til að setja í stól framkvæmdastjóra UMFÍ. Erindi hennar hét Áfram veginn og hvatti hún konur ótrauðar áfram til að láta til sín taka og gera sig áberandi í forystuhlutverkum í íþróttahreyfingunni, hvort sem það var í stjórnum íþróttafélaga og íþróttasambanda eða innan dómgæslu og þjálfunar.

Á meðan á ráðstefnunni stóð var þátttakendum boðið upp á að taka þátt með því að senda inn spurningar í gegnum Slido-samskiptaapp og svara svo í lok ráðstefnu spurningalista, sem búinn hafði verið til til að meta gagnsemi ráðstefnunnar. Þar sem ekki var hægt að taka saman rafræna samantekt í lokin vegna tímaleysis, verður greint síðar frá samantektinni, Þeir sem voru skráðir á ráðstefnuna munu fá sendan spurningalistann og standa vonir til að allir gefi sér tíma, sem fyrst, til að svara þeim spurningum sem svo verður unnið úr.

Dagskrá
  • Setning ráðstefnunnar Olga Bjarnadóttir, annar varaforseti ÍSÍ.
  • Eru einhverjar áskoranir kvenna í forystu íþrótta? Viðar Halldórsson félagsfræðingur
  • Ferðalagið innan knattspyrnuheimsins Klara Bjartmarz, fráfarandi framkvæmdastjóri KSÍ
  • Tækifæri til að hafa áhrif Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands
  • Pallborðsumræður
  • Að fóta sig í dómgæslu Bríet Bragadóttir, alþjóðlegur knattspyrnudómari
  • Segðu já! Erna Héðinsdóttir, dæmir á ÓL í París í lyftingum
  • Mikilvægi dómgæslu í íþróttum Hlín Bjarnadóttir, dæmir á ÓL í París í áhaldafimleikum
  • Hvernig breytum við leiknum? Hulda Mýrdal, Heimavöllurinn
  • Hvenær borðið þið eiginlega? Díana Guðjónsdóttir handknattleiksþjálfari
  • Að þjálfa konur vs karla, er einhver munur? Gunnar Páll Jóakimsson frjálsíþróttaþjálfari
  • Konur í þjálfun og þjálfun á konum í knattspyrnu Lára Hafliðadóttir situr í stjórn Hagsmunasamtakakvenna í knattspyrnu (HKK)
  • Áfram veginn! Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ
Þú getur séð ráðstefnuna

Streymt var beint frá ráðstefnunni Konur og íþróttir. Sömuleiðis var streymt beint á YouTube og geta netverjar sem áhuga hafa á efninu en höfðu ekki tök á að fylgjast með á föstudag séð hana þegar þeir kjósa. 

Þú getur smellt á myndina hér að neðan og farið beint á netstreymið.