Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar 2024

Frisbígolf

Dagur, tími og staðsetning

Dagsetning: laugardagur 8. júní.
Tími: 14:00 - 16:00. 
Staðsetning: Aragerði. 

Aldurs- og kynjaflokkar

Einn kynjaflokkur 50+.

Keppnisfyrirkomulag / reglur

Frisbígolf er afar skemmtilegt og eitthvað sem flestir geta fundið sig í.

Folf er spilað líkt og hefðbundið golf nema með frisbídiskum. Takmarkið er að kasta disknum í körfuna í sem fæstum skotum og sá vinnur sem þarf fæst skot. Annað skot er tekið þar sem diskur lendir eftir fyrsta skot og sá á fyrst að gera sem lengst er frá körfu. Tillitssemi er stór hluti af leiknum og því er sanngjarnt að mótspilari þinn fái að kasta án truflunar, þar sama myndir þú vilja. Ekki taka kast fyrr en þú ert viss um að flug disksins og lending trufli ekki hina spilarana. 

Skot frá skotteigi verða að eiga sér stað á eða fyrir aftan ákveðna skotlínu. Ekki kasta fyrr en meðspilarar fyrir framan þig eru komnir úr skotfæri. Takið fyrstu upphafsskot eftir fyrir fram ákveðinni röð og síðan fer röðin eftir skori síðustu brautar, sá spilari sem var með fæstu skotin tekur fyrstur upphafskot. Diska á ávallt að skilja eftir þar sem þeir liggja og ekki taka upp fyrr en skot er tekið. 

Það kostar nokkra æfingu að staðsetja fætur rétt þegar kastað er. Sá fótur sem þú setur þungann á í kastinu verður að vera eins nálægt skotstað og kostur er. Hann má aldrei fara yfir skotlínu og ekki meira en 30 cm. fyrir aftan hana eða til hliðar. Hinn fóturinn má vera hvar sem er svo fremi sem hann fari ekki nær körfunni en skotlínan er. 

Leyfilegt er að fylgja eftir skoti með því að stíga yfir skotlínu eftir að kast er tekið, nema þegar púttað er þ.e. innan 10 metra frá körfu. Ekki er leyfilegt að falla fram fyrir sig til að halda jafnvægi í pútti. Ef diskurinn festist í tré eða runna þá er diskurinn færður og settur á jörðina nákvæmlega fyrir neðan þann stað sem hann sat fastur og kastað er þaðan. 

Ef diskurinn lendir á stað sem er ekki hægt að kasta frá er hann færður út úr þeim aðstæðum, þó ekki nær körfu, og kastað þaðan.