Hver erum við?
Ungmennafélag Íslands er landssamband ungmennafélaga. UMFÍ var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907. Innan UMFÍ eru 26 sambandsaðilar. Félögin eru 450 og eru það öll íþrótta- og ungmennafélög á Íslandi. UMFÍ skapar aðstæður þar sem gleði og samvinna eflir íþrótta- og æskulýðsstarf um allt land.
Lesa meiraSambandsaðilar
26
Félög
478
Félagsmenn
290.000
Fréttir
17. september 2026
520 milljónir til svæðisstöðva íþróttahéraða
Gert er ráð fyrir 520 milljónum króna framlagi frá mennta- og barnamálaráðuneyti til stuðnings við svæðisstöðvar íþróttahéraða á árunum 2027 til 2030. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi stjórnarinnar um breytingar á lögum um barnavernd á Alþingi í vikunni.
16. september 2026
Algjör veisla á ungmennaráðstefnu UMFÍ
„Þetta verður algjör veisla. Ég hlakka ótrúlega mikið til af því að það er pakkað og við erum að fá þátttakendur af öllu landinu, marga sem eru að koma í fyrsta sinn,“ segir Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson, varaformaður Ungmennaráðs UMFÍ. Ráðið heldur ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsa í Hrútafirði um helgina.
14. september 2026
Sambandsráðsfundur UMFÍ
Sambandsráðsfundur UMFÍ fer fram á Hótel Ísafirði laugardaginn 10. október næstkomandi. Fundartími er áætlaður frá klukkan 10:00 til 16:00.
Siðareglur og samskiptaráðgjafi
Siðareglur
Mikilvægt er fyrir öll sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. Siðareglur þessar gilda fyrir allt starfsfólk og sjálfboðaliða Æskulýðsvettvangsins. Gerist aðili brotlegur við reglurnar er heimilt að vísa honum úr starfi, tímabundið eða að fullu.
Samskiptaráðgjafi
Einelti, áreitni og ofbeldi í hvers kyns mynd er ekki liðið innan skipulags íþrótta- eða æskulýðsstarfs. Markmiðið með starfsemi samskiptaráðgjafa er að stuðla að því að starfið fari fram í öruggu umhverfi og að fólk geti leitað aðstoðar eða réttar síns án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar.