Fara á efnissvæði
28. október 2026

Frístundastyrkir eiga að jafna tækifæri barna

Frístundastyrkir sveitarfélaga eiga að tryggja að öll börn geti tekið þátt í íþróttum og tómstundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Ný skýrsla um fátækt barna og stöðu barnafjölskyldna bendir þó til þess að styrkirnir séu misháir eftir sveitarfélögum og dugi ekki alltaf til að tryggja jafnan aðgang. Niðurstöður skýrslunnar verða kynntar á málþingi um fátækt barna á morgun.

Skýrslan, Fátækt barna og staða barnafjölskyldna, kom út í ágúst og er sú þriðja í röð skýrslna um samfélagslegan kostnað vegna fátæktar. 

 

Smella hér og lesa skýrsluna

 

Allt að tvöfaldur munur á styrkjum

Í skýrslunni er bent á að kostnaður geti haft áhrif á hvort börn komist í skipulagt frístundastarf. Þar eru frístundastyrkir fimm sveitarfélaga bornir saman:

 

  • Kópavogur (Hvatapeningur): 90.000 kr. fyrir 5 ára börn og 70.000 kr. fyrir 6–18 ára.
  • Reykjavík (Frístundakortið): 75.000 kr. fyrir 6–18 ára.
  • Akureyri (Frístundastyrkur): 60.000 kr. fyrir 6–18 ára.
  • Múlaþing (Frístundastyrkur): 45.000 kr. fyrir 4–18 ára.
  • Ísafjarðarbær (Frístundastyrkur): 40.000 kr. fyrir 6–16 ára.

 

Barn í Reykjavík fær þannig nærri tvöfalt hærri styrk en barn á Ísafirði. Höfundar taka fram að samanburðurinn sé lýsandi og nái aðeins til fárra sveitarfélaga. Hann gefi þó vísbendingu um að börn utan höfuðborgarsvæðisins fái minni stuðning og að útgjöld barnafjölskyldna á landsbyggðinni geti því verið þyngri.

 

Allt í Skinfaxa

Til stuðnings vísa höfundar í ítarlega samantekt í Skinfaxa, tímarit UMFÍ, frá því í október árið 2025. Þar er fjallað ítarlega um frístundastyrki, mun á æfingagjöldum á milli landssvæða, kostnað við þátttöku í keppni og fleira.

Smella hér og lesa Skinfaxa: 

Hvað kostar að æfa íþróttir?

Í tillögum skýrslunnar segir að frístundastyrkir séu talsvert breytilegir og geti verið ófullnægjandi til þess að tryggja jafnan aðgang barna að íþrótta- og tómstundastarfi. 

Höfundar skýrslunnar leggja til að samræming og efling styrkjanna verði skoðuð sérstaklega. Þeir vísa jafnframt til norskrar skýrslu frá 2023 þar sem lögð var áhersla á að tryggja öllum börnum aðgang að frístundastarfi sem hluta af víðtækri stefnu í málefnum barna.

 

Börn af erlendum uppruna standa höllum fæti

Samkvæmt skýrslunni eru mun meiri líkur á að börn af erlendum uppruna búi við fátækt en börn með íslenskan bakgrunn og hefur bilið á milli hópanna breikkað. Höfundar segja mikilvægt að tryggja þátttöku þessara barna í frístundastarfi og kanna hvort frístundastyrkir og annar opinber stuðningur nái í raun til fjölskyldna þeirra, eða hvort grípa þurfi til sértækra aðgerða.

Þá sýna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, sem fjallað er um í skýrslunni, skýr tengsl milli fjárhagsstöðu heimila og heilsu barna, félagslegrar þátttöku þeirra og upplifunar af einelti.

 

Málþing um fátækt barna

Forsætisráðuneytið, mennta- og barnamálaráðuneytið og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands bjóða til málþings um fátækt barna.

Málþingið verður í Veröld, húsi Vigdísar fimmtudaginn 29. október á milli klukkan 8:30 - 10:30. Aðgangur er ókeypis. 

Þar verða kynntar helstu niðurstöður skýrslunnar og drög að stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn fátækt barna. Fjallað verður um áhrif efnahagslegrar stöðu á líðan og þátttöku barna, hvaða hópar standa höllum fæti og hvernig megi bæta stuðning og jafna tækifæri barna.

Meðal erinda er umfjöllun Ragnýjar Þóru Guðjohnsen og Hans Haraldssonar um þátttöku barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi undir yfirskriftinni Misjöfn tækifæri.

 

Smelltu hér til að horfa á málþingið í streymi


Smelltu hér til að skoða rannsóknarskýrsluna

 

Dagskrá

08:30–09:00 Móttaka og morgunkaffi

09:00–09:10 Ávarp mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland

09:10–09:35 Fátækt barna og staða barnafjölskyldna, helstu áskoranir og niðurstöður nýlegrar skýrslu – Kolbeinn Stefánsson og Halldór S. Guðmundsson

09:35–09:50 Þátttaka barna og ungmenna á Íslandi í skóla- og frístundastarfi: Misjöfn tækifæri – Ragný Þóra Guðjohnsen og Hans Haraldsson

09:50–10:00 Aðgerðir gegn fátækt barna: Stefna, framkvæmd og framtíðarsýn – Kolbrún Áslaug Baldursdóttir

10:00–10:20 Samtal við hagaðila um leiðir til að draga úr fátækt barna. Frá rannsóknum til aðgerða:

  • EAPN á Íslandi – Samtök gegn fátækt og félagslegri einangrun – Hildur Oddsdóttir
  • Stattu með sjálfri þér – Hjálparstarf kirkjunnar – Birgitta Baldvinsdóttir og Eva Björk Jónsdóttir
  • Varða – rannsóknastofnun vinnumarkaðarins – Kristín Heba Gísladóttir
  • Samantekt og lokaorð – Salvör Nordal, umboðsmaður barna

 

Þú getur smellt á myndirnar hér að neðan, bæði til að lesa umfjöllunina í Skinfaxa árið 2025 og lesa nánar um málþing forsætisráðuneytis, mennta- og barnamálaráðuneytis og Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands um fátækt barna.