Öllum flokkum

08. júlí 2024
Erla Björk er nýr formaður HSS
Erla Björk Jónsdóttir var kosin formaður Héraðssambands Strandamanna (HSS) á ársþingi sambandsins fyrir nokkru. Hún tók við af Jóhanni Birni Arngrímssyni, sem gaf ekki kost á sér áfram en varð varaformaður.

08. júlí 2024
Fjölskyldan skemmtir sér á Unglingalandsmóti
Mikið er lagt upp úr því að fjölskyldan hafi gaman á Unglingalandsmóti UMFÍ og margt í boði fyrir systkini þátttakenda, að sögn Bjarneyjar Lárudóttur Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB).

04. júlí 2024
Skráning hafin á Unglingalandsmótið
Opið er fyrir skráningu á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Í boði er keppni í 18 íþróttagreinum og allskonar afþreyingu. Tjaldsvæði fylgir með miðakaupum fyrir alla fjölskylduna!

28. júní 2024
Tækifæri fyrir ungt fólk!
UMFÍ veitir ungu fólki sem hyggur á nám við lýðháskóla í Danmörku styrk fyrir skólaárið 2024 - 2025 sem og haustönn 2024 (ágúst - desember 2024).

20. júní 2024
Konur ræddu um íþróttir á kvenréttindadegi
Rúmlega 80 konur tengdar íþrótta- og ungmennafélögum og sérsamböndum hittust á kvennaréttindadaginn, treystu tengslin og hlýddu á tvö erindi um íþróttir og fleira. Viðburðurinn var haldinn í kjölfar ráðstefnunnar Konur og íþróttir sem ÍSÍ og UMFÍ héldu í mars.

20. júní 2024
Silja er verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ
„Ég mætti á mitt fyrsta Unglingalandsmót UMFÍ með fjölskylduna á Sauðárkróki í fyrra. Þetta var stórskemmtileg helgi,“ segir Silja Úlfarsdóttir, sem ráðin hefur verið verkefnastjóri mótsins í Borgarnesi.

19. júní 2024
Landsmótið á Laugarvatni í lit
Það er alltaf gaman að sjá hvernig fortíðin leit út í lit. Kári Jónasson stóð í tiltekt heima hjá sér fyrir nokkru. Upp úr gömlum kössum komu litmyndir sem hann tók á Landsmóti UMFÍ á Laugarvatni árið 1965.

18. júní 2024
Kvennahittingur ÍSÍ og UMFÍ 19. júní
ÍSÍ og UMFÍ standa fyrir kvennahittingi í tilefni af kvenréttindadeginum 19. júní. Hittingurinn er haldinn í framhaldi af ráðstefnunni Konur og íþróttir, forysta og framtíð sem fram fór í mars.

18. júní 2024
Um 400 tóku þátt í landsmóti
„Þetta gekk vonum framar og verður seint hægt að full þakka þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum frá Vogum sem lögðu hönd á plóg,“ segir Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar Vogum eftir Landsmót UMFÍ 50+.