Fara á efnissvæði

Öllum flokkum

Fréttir

Öllum flokkum

16. janúar 2023

Kristófer hjá TBR: Gott að fara í æfingaferð á Laugarvatn

„Krökkunum fannst alveg rosalega gaman og foreldrarnir voru mjög ánægðir,“ segir Kristófer Darri Finnsson, þjálfari og fararstjóri í peppferð á vegum TBR til Laugarvatns um helgina. Í hópnum voru 33 börn og ungmenni ásamt foreldrum og þjálfurum og gistu þau í húsnæði Ungmennabúða UMFÍ.

12. janúar 2023

Öflug og samræmd íþróttahéruð

Lengi hefur verið rætt um nauðsyn þess að endurskoða málefni íþróttahéraða með það fyrir augum að styrkja íþróttafélögin og starfið um allt land. Ýmsar sviðsmyndir hafa verið settar fram. En hvernig er hljóðið innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar? Hér er rætt við Sonju hjá UMSB um málið.

10. janúar 2023

Veistu hvað skal gera?

Vita þjálfararnir í þínu félagi hvað þarf að gera ef einhver hagar sér ósæmilega eða ef áfall verður í iðkendahópnum? Æskulýðsvettvangurinn býður upp á námskeiðið Verndum þau fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða aðildarfélaga UMFÍ.

04. janúar 2023

UMFÍ leitar að starfsmanni í afleysingar í Ungmennabúðunum

Við leitum að leiðbeinanda í 60-100% tímabundið starf í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni. Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan janúar og unnið með okkur fram í apríl. Starf frístundaleiðbeinanda felur í sér að leiðbeina ungmennum á námskeiðum. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2023.

03. janúar 2023

HSV leitar að nýjum yfirþjálfara Íþróttaskólans

Héraðssamband Vestfjarðar (HSV) auglýsir eftir starfi yfirþjálfara Íþróttaskólans. Skólinn er fyrir öll börn í 1-4. bekk grunnskóla Ísafjarðarbæjar og áhersla þar lögð á að börnin fái þjálfun í flestum íþróttagreinum sem í boði eru á eldri flokkum allra þrettán aðildarfélaga HSV í Ísafjarðarbæ.

02. janúar 2023

Leiðari: Sterkari saman á nýju ári

Við stöndum á tímamótum, við þröskuld liðins árs og við upphaf þess nýja,  með fullt af óteljandi tækifærum. Þar  sem tíminn er takmarkaður þurfum við að velja  og hafna og velja þær leiðir sem skila okkur lengra fram á veginn, skrifar Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ í leiðara Skinfaxa.

02. janúar 2023

Pétur Rúnar: Heppinn að spila með vinum mínum

„Ég hef verið mjög heppinn með það að hafa spilað mest alla ævi mína með mínum bestu vinum,“ segir Pétur Rúnar Birgisson, liðsmaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Hann var útnefndur Íþróttamaður Skagafjarðar á milli jóla og nýárs. Þjálfarar ársins eru Baldur, Helgi og Svavar í sömu deild.

30. desember 2022

Þegar Pelé las Skinfaxa

Pelé, einn af þekktustu knattspyrnumönnum heims, lést í gær 82 ára að aldri. Hann varð þrisvar heimsmeistari með liði sínu, mikill markaskorari og var ötull boðberi íþróttarinnar. Pelé kom til Íslands 11. ágúst árið 1991. Hér er heimsóknin rifjuð upp enda heimsótti hann nokkra sambandsaðila UMFÍ.

30. desember 2022

Skinfaxi 2022: Síðasta tölublað ársins komið út

Nýjasta tölublað Skinfaxa, tímarits UMFÍ, og síðasta tölublað ársins er komið út. Blaðið er eins og alltaf stútfullt af brakandi fersku efni úr ungmennafélagshreyfingunni. Í þessu síðasta tölublaði ársins eru viðtöl, fjallað ítarlega um íþróttahéruð, skautaíþróttir og margt fleira.