Fara á efnissvæði

Öllum flokkum

Fréttir

Öllum flokkum

07. júní 2022

Íþróttastarf fatlaðra á Íslandi fyrirmynd í Rúmeníu

„Rúmenar eru að vinna í því að setja á laggirnar íþróttafélög fatlaðra um þessar mundir og eru þess vegna að kynna sér hvernig málum er háttað hér á Íslandi,“ segir Anna Karólína Vilhjálmsdóttir hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Hún kom í heimsókn í þjónustumiðstöð UMFÍ í dag með sendinefnd frá Rúmeníu.

02. júní 2022

Brosmildur hlaupahópur við Bessastaði

Við tókum upp auglýsingu fyrir Forsetahlaupið á hlaðinu og veginum við Bessastaði í gær. Nokkuð þurfti að hafa fyrir upptökunum og var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, svo vinsamlegur að gefa fágætt leyfi fyrir upptökunum.

31. maí 2022

Sveinn Ægir: Unglingalandsmót skilar miklu til samfélagsins

„Við í Björgunarfélagi Árborgar erum þakklát að geta loksins tekið þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á Selfossi. Þetta er þriðja tilraunin,“ segir Sveinn Ægir Birgisson, varaformaður Björgunarfélags Árborgar, sem mun sinna gæslu og ýmsum öðrum verkefnum á Selfossi um verslunarmannahelgina.

31. maí 2022

Svona skráir þú þig á Landsmót UMFÍ 50+

Nú geta allir sem hafa fundið sína uppáhalds íþrótt eða vilja prófa eitthvað skemmtilegt skráð sig til leiks á Landsmót UMFÍ 50+ sem fram fer í Borgarnesi dagana 24. – 26. júní. Til að enginn lendi í vandræðum við skráningu á mótið þá höfum við tekið saman leiðbeiningar fyrir þátttakendur.

30. maí 2022

Námskeið um barnavernd

Ert þú með á hreinu hvernig á að bregðast við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnun og ungmennum?

27. maí 2022

Óskar er nýr formaður Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar

„Þingið var nokkuð vel sótt“ segir Óskar Þórðarson, sem var kjörinn formaður Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar (UÍF) á ársþingi sambandsins á þriðjudag. Hann tók þar við af Jónínu Björnsdóttur. Haukur Valtýsson, fyrrverandi formaður UMFÍ, var gestur þingsins.

27. maí 2022

UMFÍ leitar að starfsfólki í skólabúðir á Reykjum

UMFÍ leitar að frábæru starfsfólki í 100% stöður í framtíðarstörfum í Skólabúðum að Reykjum í Hrútafirði í haust. Um er að ræða störf frístunda- og tómstundaleiðbeinanda, matráður í mötuneyti og stöðugildi í þrif og ræstingar. Um er að ræða framtíðarstörf allt árið um kring í Hrútafirði.

25. maí 2022

Margrét Lilja: Við getum breytt þessu

„Við leggjum mikla áherslu á að börn af erlendum uppruna stundi skipulagt íþróttastarf. Þar er tungumálið ekki vandamálið,“ segir Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og kennari við íþróttadeild Háskólans í Reykjavík.

25. maí 2022

Ásmundur Einar Daðason: Mikilvægt að grípa inn í

„Við verðum að geta gripið inn í, tengt saman sveitarfélög og aðra ólíka þætti. Vonandi munum við öll læra,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, á málþingi sem UMFÍ og ÍSÍ stóðu að um þátttöku barna og ungmenna af erlendu bergi í skipulögðu íþróttastarfi.