Hver erum við?
Ungmennafélag Íslands er landssamband ungmennafélaga. UMFÍ var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907. Innan UMFÍ eru 26 sambandsaðilar. Félögin eru 450 og eru það öll íþrótta- og ungmennafélög á Íslandi. UMFÍ skapar aðstæður þar sem gleði og samvinna eflir íþrótta- og æskulýðsstarf um allt land.
Lesa meiraSambandsaðilar
26
Félög
450
Félagsmenn
290.000
Fréttir
13. febrúar 2026
Afslættir á viðburði rjúfi félagslega einangrun
Öryrkjum og ellilífeyrisþegum hættir til að einangra sig. Þátttaka á viðburðum og samneyti við annað fólk er heilsubót. Íþróttafélög og fleiri ættu því að finna ráð til að gera fólki í þessum hópi kleift að sækja viðburði, segir Páll Ásgrímur Jónsson, Garðbæingur ársins 2023.
11. febrúar 2026
Allir snúa bökum saman í íþróttum
„Það var ótrúlegt að upplifa allan þennan kærleika og samtakamátt,“ segir Bjarni Helgason, stjórnarmaður hjá Skautafélagi Reykjavíkur (SR). Minningaleikur Skautafélags Reykjavíkur og Fjölnis fór fram í gær. Leikurinn var til heiðurs Patreki Frey Sveinssyni, U18 leikmanni Skautafélagsins Reykjavíkur, sem lést 17 ára gamall í bílsslysi 5. febrúar.
11. febrúar 2026
Ráðherra skrifaði undir fimm samninga við íþróttahreyfinguna
„Við viljum jafna tækifæri til íþróttaiðkunar um allt land og nýta íþróttir til að byggja upp sterka einstaklinga, ,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og ráðherra íþróttamála. Hún undirritaði í dag fimm samninga með ÍSÍ, UMFÍ og Íþróttasambandi fatlaðra auk samnings um fjármögnun svæðisstöðva íþróttahéraðanna.
Siðareglur og samskiptaráðgjafi
Siðareglur
Mikilvægt er fyrir öll sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. Siðareglur þessar gilda fyrir allt starfsfólk og sjálfboðaliða Æskulýðsvettvangsins. Gerist aðili brotlegur við reglurnar er heimilt að vísa honum úr starfi, tímabundið eða að fullu.
Samskiptaráðgjafi
Einelti, áreitni og ofbeldi í hvers kyns mynd er ekki liðið innan skipulags íþrótta- eða æskulýðsstarfs. Markmiðið með starfsemi samskiptaráðgjafa er að stuðla að því að starfið fari fram í öruggu umhverfi og að fólk geti leitað aðstoðar eða réttar síns án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar.