Rakel ný í Skólabúðum UMFÍ
„Það er sannur heiður að fá þetta starf. Ég fór sjálf í skólabúðirnar á sínum tíma og það var ótrúlega gaman,“ segir Rakel Ósk Ólafsdóttir. Hún var á dögunum ráðin í starf verkefnastjóra Skólabúða UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Hún kemur til starfa um áramótin.
Sigurður mun á sama tíma taka við mótahaldi UMFÍ.
Rakel þekkir nokkuð vel til Reykja og nánasta umhverfis Skólabúðanna. Hún er fædd og uppalin á bænum Reykjum, sem er í göngufæri frá búðunum, en móðir hennar sá um þrif þar um nokkurra ára skeið.
Rakel, sem verður þrítug síðar á árinu, er með B.A. gráðu í sálfræði og B.S. í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Hún er búsett á Hvammstanga ásamt fjölskyldu sinni og vinnur þar á Hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og á Heilsugæslunni í bænum.
Rakel hefur lengi verið viðloðandi íþróttir og lét að sér kveða í frjálsum og fótbolta, en hún spilaði meðal annars knattspyrnu með kvennaliðum Kormáks og Tindastóls. Síðan þá hefur hún líka þjálfað yngri flokka og unnið með börnum og unglingum. Í vor tók hún svo við sem formaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga (USVH), sambandsaðila UMFÍ.
Skólabúðirnar hafa alla tíð verið í bakgarði Rakelar, ef svo má segja, og þekkir hún húsakostinn inn og út.
„Ég ber þess vegna mjög sterkar tilfinningar til staðarins,“ segir Rakel sem kemur til starfa hjá UMFÍ eftir áramótin.
Vinsælar skólabúðir
UMFÍ hefur starfrækt Skólabúðir á Reykjum í Hrútafirði frá haustinu 2022 og hefur starfsemin vaxið hratt frá þeim tíma.
Á hverju ári koma á milli 3.300 til 3.600 nemendur í 7. bekk af öllu landinu í búðirnar og dvelja þar frá mánudegi til fimmtudags. Í búðunum fá nemendur tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni og sjálfsmynd sína og vinna með styrkleika sína.
Skólabúðirnar eru í dag eitt stærsta og umfangsmesta verkefni UMFÍ og hafa fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir félagsfærni, samveru og persónulegan þroska ungmenna. Mikil ásókn er meðal grunnskóla landsins að komast í Skólabúðirnar og hefur verið fullbókað öll þau ár sem UMFÍ hefur séð um rekstur þeirra.