65,7% barna á Íslandi taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi
Tvö af hverjum þremur börnum upp að 18 ára aldri á Íslandi, eða 65,7%, tóku þátt í skipulögðu starfi íþróttafélaga á síðasta ári. Þetta jafngildir því að 55.872 af 85.016 börnum á aldrinum 0–17 ára tóku þátt í því. Á sama tíma stóðu 29 þúsund börn utan þess.
Þessar upplýsingar eru byggðar á splunkunýjum upplýsingum úr skilakerfi íþróttahreyfingarinnar og upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Samanteknar upplýsingar eru samstarfsverkefni Hagstofunnar, Umboðsmanns barna, ÍSÍ og UMFÍ. Þessar upplýsingar voru kynntar á föstudaginn í síðustu viku og stendur til að gera það framvegis á hverju ári.
Niðurstöðurnar voru kynntar á Alþjóðlegum mannréttindadegi barna í samstarfi við Umboðsmann barna, Hagstofu Íslands, ÍSÍ og UMFÍ á föstudag í síðustu viku.
Í stuttu máli má því segja að skipulagt íþróttastarf nær vel til yngri barna. Stóru áskoranirnar eru að halda unglingum, sérstaklega stúlkum, lengur í starfinu og að ná betur til barna og fjölskyldna þeirra sem eru af erlendu bergi brotin, til barna á tekjulægri heimilum og einstæðra foreldra. Munurinn eftir fjölskyldugerð er mestur einmitt á þeim aldri þegar brottfallið er mest, 13–15 ára. Árleg birting gerir kleift að meta hvort aðgerðir á þessum sviðum skila árangri.
Lágt hlutfall barna með erlendan bakgrunn
Upplýsingarnar sýna eftirfarandi:
Góð þátttaka um allt land. Hæsta hlutfall barna sem skráð er í skipulagt íþróttastarf er á Norðurlandi vestra (71,3%) og á Suðurlandi (70,2%). Neðst eru Suðurnes (59,1%) og Vestfirðir (56,3%). Munurinn liggur aðallega hjá unglingum. Hjá 16–17 ára eru um 58% barna og ungmenna skráð í skipulagt íþróttastarf á Suðurlandi og Norðurlandi vestra. Hlutfallið er 39% á Suðurnesjum.
Mest þátttaka eru hjá 6–9 ára en lækkar eftir það. Hlutfallið er hæst 6–9 ára (86,8%) og lækkar jafnt og þétt niður í 45,8% hjá 16–17 ára. Það er 41 prósentustiga lækkun. Þau sem halda áfram í skipulögðu íþróttastarfi stunda líka færri greinar: að meðaltali 2,39 greinar hjá 6–9 ára en 1,43 hjá 16–17 ára.
Stúlkur hætta fyrr en drengir. Alls eru 68,0% drengja skráð og 63,3% stúlkna. Á leikskólaaldri er enginn teljandi munur. Bilið eykst hins vegar um 10–12 ára aldurinn og er orðið um 12% hjá 13–17 ára. Hjá 16–17 ára eru 51,4% drengja skráð í skipulagt íþróttastarf en 39,7% stúlkna.
Munur eftir bakgrunni. Töluverður munur er á því hvort iðkandi er af erlendu bergi brotinn eður ei. Börn sem fædd eru hér á landi og eiga rætur að rekja til Íslands eru mun fleiri en þau sem eru með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn. Munurinn er 70,7% barna án erlends bakgrunnar á móti 43,8% barna með bakgrunn af erlendu bergi brotið. Bilið helst á öllum aldri. Lægst allra eru stúlkur 16 - 17 ára af erlendu bergi brotnar en hlutfall þeirra sem þátt taka í skipulögðu íþróttastarfi er aðeins 14,3%. Hæsta hlutfallið á móti eru drengir 6–9 ára án erlends bakgrunns og er hlutfall þeirra 92,4%.
Þátttakan eykst með tekjum fjölskyldu. Þátttaka barna eykst í samræmi við tekjur fjölskyldunnar.
Börn einstæðra foreldra eru síður skráð. Um 59,0% barna einstæðra foreldra taka þátt í skipulögðu starfi íþróttafélaga. Þetta er nokkuð lægra hlutfall en á heimilum þar sem tveir fullorðnir eða fleiri búa með barninu – þar er hlutfallið 67,6%. Hlutfallið er lægra hjá börnum einstæðra foreldra í öllum aldurshópum og bilið vex með aldri.
Úrval upplýsingamynda má sjá hér að neðan. Ítarlegri upplýsingar eru í Powerpoint-gagnapakka á þessum hlekk: