Fara á efnissvæði
01. mars 2024

Allir með af stað í Árborg

„Ég hvet alla þjálfara til að taka þessu verkefni með opnum hug, því sigrar barna með fötlun eru gríðarlega stórir,“ sagði Þórdís Bjarnadóttir frá Íþróttafélaginu Suðra við undirritun samstarfssamnings á vegum Hvatasjóðs verkefnisins Allir með við Ungmennafélag Selfoss og Íþróttafélagið Suðra. 

Undir samninginn skrifuðu þeir Helgi S. Haraldsson, formaður Ungmennafélags Selfoss, Ófeigur Ágúst Leifsson frá Íþróttafélaginu Suðra, og Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri verkefnisins Allir með. 

Í samningnum felst að Hvatasjóðurinn styrkir íþróttastarf fyrir iðkendur með fötlun, félagið skuldbindur sig m.a. til að bjóða að lágmarki upp á eina æfingu í viku í eitt ár fyrir iðkendurna og geta leitað ráðgjafar hjá Íþróttasambandi fatlaðra og Allir með. 

Að verkefninu Allir með standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélag Íslands (UMFÍ), Íþróttasamband fatlaðra og þrjá ráðuneyti, þ.e. Mennta- og barnamálaráðuneyti, Heilbrigðisráðuneytið og Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. 

Helgi Haraldsson taldi samstarfssamninginn afar jákvæðan. „Það er löngu tímabært að horfa til þess hóps. Ég vil trúa því að íþróttahreyfingin hafi verið feimin gagnvart þessum hópi og ekki þorað að taka skrefið. Nú hefur íþróttahreyfingin fengið hvatningu til að gera þetta,“ sagði hann og var þess fullviss að Ungmennafélag Selfoss geti látið verkefnið stækka og dafna. 

 

Aðeins 4% stunda íþróttir

Valdimar Gunnarsson frá Allir með sagði að af rúmlega 3.000 börnum með fötlun á Íslandi stundi afar lítill hópur íþróttir eða aðeins 4%. Ljóst sé að fjölga þurfi tækifærum fyrir börn í þessum hópi og gengur verkefni Allir með út á það.

„Börn með fötlun innan sex til 16 ára er því eiginlega ekki að finna innan íþróttahreyfingarinnar,“ sagði Valdimar og bætti við að markmiðið væri að breyta því.

Valdimar hefur farið víða um land til að kynna verkefnið og Hvatasjóðinn sem nú styrki níu verkefni í nokkrum sveitarfélögum. 

Valdimar sagði margt í bígerð í þeim tilgangi að fjölga tækifærum barna með fötlun í íþróttum. Þar á meðal séu Íslandsleikarnir svokölluðu. Það er körfuknattleiks- og knattspyrnumót sem haldið verður 16-17 mars. Í því felst að hópur barna með fötlun fer í rútu til Akureyrar, iðkendur á Akureyri taka á móti hópnum sem gistir á dýnum í skólum eins og aðrir íþróttahópar. 

„Þetta verður keppnisferð með vinum okkar á Akureyri og ég held að verði mikilvægur hluti af starfinu, því það er svo mikilvægt að fólki hafi eitthvað til að hlakka til,“ sagði Valdimar. 

 

Heimasíða Allir með

Fjölmenni var við undirritunina á Hótel Selfossi en um svipað leyti skrifaði þar Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undir samning við Árborg um stuðning við ungt fólk sem hvorki er í námi né vinnu.

Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá undirritun samningsins.