Fara á efnissvæði
19. ágúst 2026

Blómstrum, styrkjumst og tengjumst!

Ungt fólk og lýðheilsa

Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) blæs til metnaðarfullrar ráðstefnu fyrir ungt fólk dagana 18.–20. september 2026, þar sem lýðheilsa ungmenna verður í brennidepli. Ráðstefnan ber yfirskriftina Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst og fer fram í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði.

Markhópur ráðstefnunnar er ungt fólk á aldrinum 15–25 ára, óháð því hvort það tilheyri ungmennaráði eða félagi innan hreyfingarinnar. Þema ráðstefnunnar vísar til þess að efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu ungs fólks á tímum þar sem áreiti, hraði og aukin skjánotkun hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf og líðan.

 

Vinnustofur, samtal og samvera

Dagskráin er fjölbreytt og byggir á vinnustofum, samtali, hópefli og samveru um sjálfsmynd, lífsstíl og tengsl – bæði í stafrænum heimi og utan hans. Auk þess verða fyrirlestrar og kvöldvökur þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast, læra og eiga skemmtilega stund saman.

Á meðal gesta ráðstefnunnar eru Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, sem deilir reynslu sinni úr íþróttum og liðsheild, og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís og sérfræðingur í stafrænu umhverfi ungs fólks, samfélagsmiðlum og netöryggi. Þeir taka báðir þátt í samtali við þátttakendur um líðan, skjánotkun, sjálfsmynd, samfélagsmiðla, pressu, jafnvægi og heilbrigðan lífsstíl.

 

Verð, ferðir og framkvæmd

Þátttökugjald er 15.000 kr. á mann og er þá innifalin gisting í tvær nætur, allar máltíðir, hressing, ráðstefnugögn og ferðir að mestu eða öllu leyti. Í boði eru rútuferðir frá Reykjavík og Akureyri á föstudegi, með heimferð á sunnudegi, og geta þátttakendur sem ekki nýta sér rútuferðirnar sótt um ferðastyrk.

Starfsfólk ungmennaráða, félagsmiðstöðva, íþróttahéraða og íþróttafélaga er hvatt til að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Ef ungmenni koma á eigin vegum getur starfsfólk UMFÍ verið ábyrgðaraðili þeirra, gegn undirrituðu leyfisbréfi frá foreldrum eða forráðafólki.

Ráðstefnan er með öllu vímuefnalaus, þar með talið rafsígarettur og nikótínpúðar, og er haldin með stuðningi Erasmus+.

 

Takmarkaður fjöldi

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og eru ungmenni hvött til að skrá sig tímanlega. Skráning er opin til 8. september 2026, eða þar til uppselt er.

Nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu UMFÍ. Sjá hér. 

Skráningahlekk er að finna hér. 

Viðburðurinn á Facebook er að finna hér.