Fara á efnissvæði
09. apríl 2024

Erla Þórey nýr formaður USVS

54. sambandsþing Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu (USVS) fór fram í Skaftárstofu í Vatnajökulsþjóðgarði, föstudaginn 5. apríl síðastliðinn. Þingið gekk vel og var mæting ágæt.

Erla Þórey Ólafsdóttir tók við sem nýr formaður USVS. Erla Þórey tekur við keflinu af Fanneyju Ásgeirsdóttur sem hefur verið formaður síðastliðin fjögur ár. Erla Þórey þekkir störf ungmennasambandsins vel enda verið framkvæmdastjóri þess undanfarin misseri en hún lætur af þeim störfum í enda mánaðarins. Ekki urðu fleiri breytingar á stjórn USVS.

Ragnheiður Högnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar UMFÍ og stjórnarmaður, var gestur þingsins fyrir hönd UMFÍ. Ragnheiður flutti ávarp á þinginu og kveðju fyrir hönd UMFÍ.

Á þingi USVS í fyrra kom upp sú tillaga að verðlauna sjálfboðaliða ársins og lið ársins á þingum USVS komandi ár. Því var fylgt eftir og var Fanney Ólöf Lárusdóttir, stjórnarmaður, heiðruð sem sjálfboðaliði ársins og 5. flokkur drengja USVS í knattspyrnu lið ársins en það er sameiginlegt lið Ungmennafélagsins Ás og Ungmennafélagsins Kötlu.

Fyrr á þessu ári sameinuðust Umf. Ármann og Umf. Skafti, ungmennafélög í Skaftárhreppi í Ungmennafélagið Ás. Hið nýja ungmennafélag heldur áfram að nota kennitölu fyrrum Ungmennafélags Ármanns og var því tillaga á þinginu að leggja niður fyrrum Ungmennafélag Skafta. Sú tillaga var samþykkt. Fleiri tillögur voru á þinginu, til dæmis lítilvæg breyting á lottóreglum félagsins og aukin hvatning til þátttöku í hinum ýmsu ungmennafélagsstörfum.

Einnig fóru fram heiðranir fyrir íþróttamann ársins og efnilegasta íþróttamann ársins. Þær hlutu Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir sem íþróttamaður ársins og Andri Berg Jóhannsson sem efnilegasti íþróttamaður ársins. Sigríður Ingibjörg stóð sig mjög vel á árinu í hestaíþróttum með hryssuna sína Ylfu frá Miðengi og Andri Berg náði glæsilegum árangri í motorcross á árinu.