10. september 2026
Ertu búin/n að sækja um í Hvatasjóð?
Opið fyrir umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar til 15. september næstkomandi.
Hvatasjóðurinn er samstarfssjóður ÍSÍ og UMFÍ, með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Sjóðurinn styrkir verkefni sem ætlað er að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttum, með sérstakri áherslu á börn með fötlun, börn af tekjulægri heimilum og aukinn jöfnuð til íþróttastarfs.
Í fyrra úthlutaði Hvatasjóðurinn 86,6 milljónum króna til 154 verkefna í þremur úthlutunum. Úthlutað hefur verið einu sinni úr sjóðnum á þessu ári. Styrkt voru 31 verkefni af þeim 63 umsóknum sem bárust. Heildarúthlutun nam rúmum 14,3 milljónum króna.
Minnum á að opið er fyrir umsóknir í sjóðinn til og með 15. september næstkomandi.