Fara á efnissvæði
30. apríl 2026

Ertu búin/n að skila inn umsókn?

Við vekjum athygli á því að á morgun er síðasti dagurinn til að skila inn umsóknum í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. Fresturinn er til og með 1. maí. 

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ styrkir félags- og íþróttastarf íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar, m.a. aukna menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi. 

Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra.

Umsóknarfrestir eru tveir á ári. Fyrri umsóknarfrestur er frá 1. apríl til og með 1. maí og sá seinni frá 1. október til og með 1. nóvember. 

 

Hér er hægt að senda inn umsókn í sjóðinn