Fara á efnissvæði
10. október 2026

Formaður UMFÍ: Róum í sömu átt

Samstaða og samvinna voru rauði þráðurinn í ræðu Jóhanns Steinars, formanns UMFÍ, við setningu 46. sambandsráðsfundar UMFÍ sem fram fór á Ísafirði í dag, sem er starfssvæði Héraðssambands Vestfjarða (HSV).

Afar góð mæting var á fundinn en formenn og framkvæmdastjórar allra íþróttahéraða landsins komu og er það einsdæmi. Í kringum 70 manns voru á fundinum með starfsfólki allra svæðisstöðva íþróttahreyfingarinnar, stjórn UMFÍ og starfsfólki. Tveir gestir voru á fundinum, Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Jón Páll Hreinsson, fyrrverandi bæjarstjóri Bolungarvíkur, stýrði fundinum. Hann hefur jafnframt unnið mikið og lengi fyrir HSV og að mörgum verkefnum ungmennafélagshreyfingarinnar.

Á fundinum voru hefðbundin fundarstörf auk vinnu við sameiginlega stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ. 

 

Skautun má ekki ná fótfestu

Jóhann Steinar sagði stærstu áskorun íþróttahreyfingarinnar ekki vera skort á hugmyndum eða vilja. Hún fælist í því að varðveita samstöðuna þegar skoðanir eru ólíkar. Harðari umræða og aukin skautun sæjust víða í samfélaginu og slík þróun mætti ekki ná fótfestu innan hreyfingarinnar.

Hann vék að umræðu um skiptingu lottótekna, fjármögnun og atkvæðavægi, sem verið hefur áberandi frá síðasta sambandsþingi. Málin væru ólík en snerust í grunninn um að byggja upp sterka, sanngjarna og samheldna hreyfingu. Mikilvægt væri að ræða þau af virðingu og leita lausna sem styrktu heildina.

Jóhann Steinar nefndi einnig sameiginlega stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ. Hún þyrfti að skila sér í skýrari forgangsröðun og betri stuðningi við starfið um allt land. Þá kallaði hann eftir vandaðri umræðu um framtíð landsmóta UMFÍ.
Hann minnti á að starfið snerist fyrst og fremst um börn og ungmenni sem eignast vini, öðlast sjálfstraust og finna sinn stað í samfélaginu. Hann þakkaði jafnframt sjálfboðaliðum, foreldrum, þjálfurum, stjórnarfólki og starfsfólki fyrir framlag þeirra.

Jóhann Steinar sótti líkingu í sjósókn Vestfirðinga. Ef sterkasti ræðarinn togar af öllu afli án tillits til hinna snýst báturinn í hringi. Þegar áhöfnin rær í takt kemst hann hins vegar áfram, jafnvel í mótbyr.

„Framtíð UMFÍ ræðst ekki af því hvort við verðum alltaf sammála. Hún ræðst af því hvort við getum staðið saman þegar mest á reynir,“ sagði Jóhann Steinar. „Róum því saman. Róum í takt. Róum í sömu átt.“

 

Ávarp Jóns Steinars í heild:

Kæru ungmennafélagar og góðir gestir.
Ég býð ykkur hjartanlega velkomin hingað til Ísafjarðar á sambandsráðsfund UMFÍ á starfssvæði Héraðssambands Vestfjarða.

Vestfirðingar hafa lengi vitað að leiðin að markmiði er sjaldan bein. Stundum þarf að fara yfir heiði, fyrir fjörð eða bíða af sér veður. Hindranir verða á vegi okkar, en með þrautseigju og samvinnu komumst við áfram. Þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að sjá ykkur öll hér í dag.

Sambandsráðsfundir gegna mikilvægu hlutverki í starfi UMFÍ. Hér hittumst við til að ræða málin, móta framtíðina og tökumst sameiginlega á við þau verkefni sem fram undan eru. En ekki síður hittumst við hér sem félagar, skiptumst á reynslu, lærum hvert af öðru og njótum samverunnar.

Síðasta ár hefur eins og oft áður verið viðburðaríkt. Þar vegur þungt vinna við sameiginlega stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ. Sú vinna skiptir máli, en raunverulegt gildi hennar felst í því að hún leiði til skýrari forgangsröðunar og betri stuðnings við starfsemina um allt land.

Þegar við ræðum skipulag, stjórnskipan eða fjármögnun megum við ekki missa sjónar á því sem starfið snýst um. Það snýst um barnið sem mætir á sína fyrstu æfingu. Um ungmennið sem eignast vini, öðlast sjálfstraust og finnur sinn stað í samfélaginu. Og um iðkandann sem lærir að setja sér markmið, takast á við mótlæti og vinna með öðrum ævina á enda. 

Þetta er kjarninn í starfi okkar.

Fátt minnir okkur betur á þennan kjarna en landsmót UMFÍ. Þar sjáum við í verki það samfélag sem hreyfingin hefur byggt upp í rúma öld. Fólk á öllum aldri og fjölskyldur alls staðar af landinu koma saman, mynda tengsl og upplifa þann félagsskap sem hefur alltaf verið hjarta hreyfingarinnar. Þess vegna skiptir máli að við eigum áfram vandaða og uppbyggilega umræðu um framtíð landsmótanna og það hlutverk sem þau eiga að gegna í þróun hreyfingarinnar á komandi árum.

Á bak við starfið stendur fjölmargt fólk sem leggur sitt af mörkum á hverjum degi; foreldrar, sjálfboðaliðar, þjálfarar, stjórnarfólk og starfsfólk. Fólk sem vinnur af hugsjón og trú á gildi íþrótta- og ungmennastarfs. Án þeirra væri hreyfingin ekki það öfluga samfélagsafl sem hún er í dag. Ég vil nota tækifærið og þakka öllu þessu fólki fyrir ómetanlegt framlag þess til hreyfingarinnar.

Kæru félagar.

Á síðasta sambandsþingi var mikið rætt um skiptingu lottótekna. Einnig hafa umræður um fjármögnun almennt og atkvæðavægi innan hreyfingarinnar verið áberandi. Þessi mál eru ólík, en eiga þó margt sameiginlegt. Þau snúast í grunninn um það hvernig við byggjum upp sterka, sanngjarna og samheldna hreyfingu til framtíðar. Hreyfingu sem eflir íþrótta- og ungmennastarf um allt land og skapar sem flestum tækifæri til þátttöku.

Þess vegna skiptir máli að við ræðum þessi mál af virðingu, hlustum hvert á annað og leitum lausna sem styrkja heildina.

Kæru vinir.

Stærsta áskorun íþróttahreyfingarinnar í dag er ekki skortur á hugmyndum eða vilja. Við búum yfir mikilli reynslu, þekkingu og krafti. Áskorunin felst í því að varðveita samstöðuna þegar skoðanir eru ólíkar. Við sjáum víða í samfélaginu harðari umræðu og meiri skautun. Slík þróun má ekki ná fótfestu hjá okkur.

Hér á Vestfjörðum hafa kynslóðir alist upp við sjóinn. Þeir sem reru árabátum vissu að ef sterkasti maðurinn í bátnum tók eins fast á sinni ár og hann gat, án þess að taka tillit til hinna, varð báturinn ekki hraðskreiðari. Hann fór einfaldlega að snúast í hringi. Ef hver maður reri á sínum eigin takti varð ferðin þyngri og áfangastaðurinn fjarlægari. En þegar áhöfnin tók sameiginleg áratök og stefndi í sömu átt komst báturinn áfram, jafnvel þegar á móti blés.

Þessi mynd lýsir starfi okkar vel. Styrkur hreyfingarinnar felst ekki í því að einn sé sterkari en allir aðrir og fari sína eigin leið, heldur í því að við vinnum saman og róum í sömu átt.

Kæru ungmennafélagar.

Við erum hér með ólíka reynslu, ólíkar skoðanir og ólíkar áherslur. Það sem sameinar okkur er trúin á gildi íþrótta- og ungmennastarfs og ábyrgðin gagnvart þeim sem treysta á það.
Framtíð UMFÍ ræðst ekki af því hvort við verðum alltaf sammála. Hún ræðst af því hvort við getum staðið saman þegar mest á reynir, hlustað hvert á annað og lagst saman á árarnar. 

Þegar ungmennafélagshreyfingin rær í sömu átt verður hún afl sem skapar tækifæri, styrkir samfélög og hefur jákvæð áhrif á líf fólks um allt land.

Við eigum það verkefni fram undan. Við eigum kraftinn til að leysa það. Og ég er sannfærður um að við eigum líka samstöðuna sem þarf.
Róum því saman. Róum í takt. Róum í sömu átt.

Með þeim orðum lýsi ég sambandsráðsfund UMFÍ á Ísafirði settan.

Nokkrar myndir frá fundinum.