Fara á efnissvæði
16. apríl 2026

Fundur um stefnumótun í dag

Stefnumótunarfundir íþróttahreyfingarinnar halda áfram og nú er komið að höfuðborgarsvæðinu. Fyrsti fundurinn á höfuðborgarsvæðinu í núverandi fundarröð verður í dag, fimmtudaginn 16. apríl og sá næsti á eftir verður þriðjudaginn 21. apríl.

Fundurinn í dag hefst klukkan 17:00 

Fundurinn á þriðjudag í næstu viku hefst klukkan 16:00.

Undanfarnar vikur hafa verið haldnir opnir stefnumótunarfundir víða um land þar sem fulltrúar íþróttahéraða, íþróttafélaga og annarra hagaðila hafa hist til að ræða stöðu og framtíðarsýn íþróttastarfsins. 

Markmið fundanna er að skilgreina helstu áherslur í grasrótarstarfi, afreksstarfi og samfélagsverkefnum og leita eftir því að móta sameiginlega stefnu fyrir íþróttahreyfinguna. 

Fundirnir hafa reynst afar gagnlegir og hefur útkoman nýst vel í sameiginlegri stefnumótunarvinnu ÍSÍ og UMFÍ.

 

Fundurinn í dag

Stefnumótunarfundurinn verður frá klukkan 17:00–19:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Nauðsynlegt er að bæði sérsambönd og íþróttahéruð sendi fulltrúa á fundinn. Einnig er óskað eftir þátttöku íþróttafélaganna sjálfra, sérstaklega þeirra stærri. Þeim gefst þar tækifæri til að koma áherslum sínum og sjónarmiðum á framfæri. 

Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig fyrirfram þar sem hafa þarf yfirsýn yfir fjölda til að tryggja viðeigandi aðstöðu.

Skráðu þig eða fulltrúa hér að neðan. Þú getur valið daginn í dag eða í næstu viku. 

Skráning á fund