Hreyfingin kvaddi Valdimar með leik og fjöri
Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með, var kvaddur með pompi og prakt að viðstöddu fjölmenni í Íþróttamiðstöðinni í gær. Valdimar fagnaði 67 ára afmæli á síðasta ári og ákvað fyrir nokkru síðan að ljúka störfum fyrir aldurs sakir um miðjan júní á þessu ári. Síðasti formlegi vinnudagur hans var því í gær.
Blakkonan Thelma Dögg Grétarsdóttir, íþróttafulltrúi hjá Íþróttasambandi fatlaðra (ÍF), tekur við störfum hans.
Í tilefni dagsins var ráðstefnusölum á þriðju hæð Íþróttamiðstöðvarinnar við Engjaveg breytt í lítinn leikjagarð í anda Stjörnuleikanna, sem Valdimar hefur sett upp og stýrt á ferðum sínum um allt land síðastliðin þrjú ár til að kynna íþróttastarf fyrir ungum iðkendum með ýmsar áskoranir og forráðafólki þeirra.
Fjöldi fólks mætti á viðburðinn, brá á leik og fékk sér kruðerí í tilefni dagsins.
Þórður Árni Hjaltested, formaður ÍF, hélt tölu ásamt samstarfsfólki hjá sambandinu. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, og kvaddi Valdimar sömuleiðis og afhenti honum kveðjugjöf sem hentar fyrir ferðalög Valdimars í framtíðinni. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, hélt jafnframt stutt og skemmtilegt ávarp ásamt því að afhenda honum kveðjugjöf fyrir hönd ÍSÍ. Hansína Þóra Gunnarsdóttir, starfsmaður ÍSÍ, var potturinn og pannan í leikjasvæðinu og sýndi gestum hvernig ætti að bera sig að.
Valdimar starfaði lengi hjá UMFÍ og Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK) áður en hann hóf störf sem verkefnastjóri Allir með árið 2023.
Allir með er samstarfsverkefni íþróttahreyfingarinnar, ÍSÍ, UMFÍ og Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) og þriggja ráðuneyta. Markmið þess er að fjölga tækifærum fyrir börn og ungmenni með fötlun innan íþróttafélaga og opna þeim dyr í samræmi við óskir þeirra og þarfir. Verkefnið hófst árið 2023 og þá voru vísbendingar um að einungis 4% iðkenda 17 ára og yngri með fötlun æfðu íþróttir í skipulögðu íþróttastarfi.
Nú þremur árum síðar er hlutfallið komið upp á 8% og er stefnt á enn meiri fjölgun á næstu árum.
Valdimar er hins vegar alls ekki búinn að yfirgefa íþróttahreyfinguna því hann mun stýra viðburði á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki í sumar og fylgja markaðsátaki Allir með úr höfn.
Með tuttugu gáma af sandi
Valdimar fór yfir ferilinn innan íþróttahreyfingarinnar, UMFÍ og UMSK, æskuna og íþróttalífið í Bíldudal í ítarlegu viðtali í Skinfaxa, tímariti UMFÍ, fyrir nokkrum árum.
Hægt er að smella á myndina hér að neðan og lesa viðtalið í blaðinu.
Fleiri myndir úr kveðjuhófinu má sjá þar fyrir neðan.
Fleiri myndir er hægt að sjá á Facebook-síðu UMFÍ.