Fara á efnissvæði
23. júlí 2026

HSK og SS gefa keppendum á Unglingalandsmóti treyjur

Sláturfélag Suðurlands og  Héraðsambandið Skarphéðinn (HSK) undirrituðu á þriðjudag nýjan samstarfssamning til þriggja ára. Þetta er mikilvægur samningur fyrir HSK en með samningnum verður áfram hægt að gefa öllum keppendum HSK sem fara á Unglingalandsmót UMFÍ treyjur sem merktar eru HSK og SS.

Fram kemur í frétt frá HSK að undanfarin ár hafa keppendur HSK vakið athygli fyrir mikla samstöðu á Unglingalandsmótum og hefur skipt miklu máli að þeir hafa verið í samstæðum og merktum treyjum.

Af þessu tilefni var ný treyja kynnt sem keppendur á Unglingandsmótinu fá afhentar í Selinu á mánudag í næstu viku á milli klukkan 16:30 til 19:00.

Í tengslum við viðburðinn verða grillaðar SS pylur í tilefni af tímamótunum.

Merki SS og vörur fyrirtækisins verða jafnframt mjög sýnilegar á vettvangi HSK.

HSK þakkar SS kærlega fyrir stuðninginn við ungu keppendur okkar og hlakkar til samstarfsins.