Fara á efnissvæði
24. apríl 2026

Hvatasjóður úthlutar rúmum 14 milljónum

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði í dag rúmum 14,3 milljónum króna til 31 verkefnis um allt land. Sjóðurinn styrkir verkefni sem auka þátttöku barna og ungmenna, sérstaklega barna með fötlun, barna af tekjulægri heimilum og barna af fjölmenningarlegum uppruna. 

Sjóðurinn tók til starfa í lok árs 2024 og var úthlutað þrisvar sinnum úr honum á síðasta ári. 

Úthlutunin nú er sú fyrsta á þessu ári. 

Styrkirnir eru allt frá 150 þúsund krónum og upp úr. Nokkur verkefni hlutu eina milljón króna í styrki. Á meðal nokkurra verkefna sem hlutu styrki í samræmi við áherslur sjóðsins eru sund fyrir börn með sérþarfir á vegum Sundfélags Akraness, átaksverkefni Knattspyrnufélags Rangæinga til að bregðast við miklu brottfalli stúlkna í knattspyrnu að lokinni grunnskólagöngu, hjólastólarugby Fram, bætt heilsa, sjálfsöryggi og andleg þrautseigja með taekwondo í Þorlákshöfn, fimleikafjör í Ásbrú og sundnámskeið fyrir hreyfihömluð börn og ungmenni. 

Hér að neðan má sjá úthlutanir úr sjóðnum. Allar helstu upplýsingar um sjóðinn er að finna á upplýsingasvæði hans og þar er hægt að sjá skýrari mynd af úthlutunum í mars:

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar

Úthlutun í mars 2026