Hver króna í golf skilar tveimur til baka
Ný greining KPMG fyrir Golfsamband Íslands sýnir að samfélagslegt virði golfíþróttarinnar nemur 31,2 milljörðum króna á ári. Hver króna sem varið er til golfiðkunar skilar um tveimur krónum til baka til samfélagsins. Að baki tölunum standa 63 golfklúbbar um allt land, aðildarfélög sambandsaðila UMFÍ. Meðlimir klúbbanna eru tæplega 30 þúsund. Greiningin var kynnt í síðustu viku.
Tvöföld ávöxtun fyrir samfélagið
KPMG metur samfélagslegt virði golfíþróttarinnar út frá þremur stoðum:
- Vellíðan og lífsgæði: 15,7 milljarðar króna. Metið út frá því sem kylfingar eru tilbúnir að verja til íþróttarinnar, en meðalkylfingur ver um 536 þúsund krónum á ári til golfiðkunar.
- Hagræn áhrif: 11,7 milljarðar króna. Beint hagspor golfhreyfingarinnar árið 2024, meðal annars rekstur klúbba og valla, kennsla og verslun.
- Samfélagslegur ávinningur: 3,8 milljarðar króna. Bætt lýðheilsa og minni framtíðarkostnaður í heilbrigðis- og velferðarþjónustu.
Samtals eru þetta 31,2 milljarðar króna á móti 15,7 milljörðum í útgjöldum kylfinga, sem gefur svokallaðan SROI-stuðul upp á 2,0. Niðurstaðan er sambærileg við finnska rannsókn þar sem stuðullinn var 1,9. Skýrsluhöfundar taka fram að matið á samfélagslega ávinningnum sé varfærið, því sömu forsendur voru notaðar og í Finnlandi þótt golf sé mun útbreiddara hér. Um 8% Íslendinga eru í golfklúbbi en um 3% Finna.
63 golfklúbbar
Skýrslan lýsir klúbbunum sem mikilvægum samfélagslegum innviðum. Þeir skapa aðgengi að hreyfingu og útivist í nærumhverfi fólks, og klúbbhúsin eru víða samkomustaðir þar sem haldin eru mót, viðburðir og fundir.
Starfið byggir að stórum hluta á sjálfboðaliðum. Með því skapa klúbbarnir verðmæti sem ná langt út fyrir íþróttina sjálfa og styrkja félagsauð, tengsl og lífsgæði í þeim samfélögum sem þeir þjóna. Þetta er kjarninn í starfi ungmennafélagshreyfingarinnar: öflugt félagsstarf í heimabyggð sem stendur öllum opið.
Skýrslan Virði golfíþróttarinnar fyrir líðan, heilsu og samfélag Íslendinga byggir á gögnum GSÍ um skráða rástíma, spurningakönnun sem 1.897 kylfingar svöruðu í júní 2026 og aðferðafræði sem notuð hefur verið til að meta samfélagslegt virði golfs.
Hreyfðu sig í 310 mínútur á viku
Embætti landlæknis ráðleggur fullorðnum að stunda rösklega hreyfingu í 150–300 mínútur á viku. Fram kemur í skýrslunni að kylfingar 19 ára og eldri hreyfðu sig að meðaltali í 310 mínútur á viku við golfleik yfir sumarmánuðina maí til ágúst 2025. Það jafngildir rúmlega einum golfhring á viku. Golfið eitt nægir því til að ná ráðlögðu viðmiði, og vel það.
Kylfingar láta ekki þar við sitja: 85% þeirra stunda aðra hreyfingu samhliða golfinu og rúmur helmingur gerir það allt árið. Golfhermar hafa líka lengt tímabilið, því 82% svarenda nota golfhermi utan hefðbundins golftímabils. Golf er því hluti af virkum lífsstíl, ekki tilfallandi tómstund.
Íþrótt sem eldist með fólkinu
Ein af athyglisverðari niðurstöðum skýrslunnar er sú að virkni í golfi eykst með hækkandi aldri. Í flestum íþróttum fækkar iðkendum þegar líður á ævina. Í golfi hins vegar er þróunin á hinn veginn. Fólk á aldrinum 61–70 ára spilaði flesta hringi að meðaltali árið 2025, eða 31,7, og þeir sem eru 71 árs og eldri komu næstir með 30,6 hringi. Í eldri aldurshópunum fer vikuleg hreyfing yfir sumarið yfir 330–350 mínútur.
Um 12% landsmanna 50 ára og eldri eru skráð í golfklúbb og rúmlega 4.100 félagsmenn eru 71 árs eða eldri. Í samfélagi þar sem þjóðin eldist hratt er þetta dýrmætt. Golfklúbbarnir halda fólki á hreyfingu, úti í náttúrunni og í félagsskap annarra á þeim árum sem hreyfing og félagsleg tengsl skipta hvað mestu fyrir heilsu og lífsgæði.
Andleg líðan og félagsleg tengsl
Lýðheilsa snýst ekki aðeins um líkamann. Í könnun GSÍ segja 92,7% kylfinga að golf hafi jákvæð áhrif á andlega líðan sína, og þar af eru 68,2% mjög sammála. Átta af hverjum tíu segja golf veita sér gleði og ánægju og 71,4% nefna útiveruna sérstaklega.
Félagslegi þátturinn vegur einnig þungt. Tæp 60% segja golf góða leið til að verja tíma með vinum og fjölskyldu, rúmur helmingur segir íþróttina sameina leik og félagslíf og 37% segjast kynnast nýju fólki í gegnum golfið.
Skýrsluhöfundar benda á að golf sameini þrjá þætti sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin leggur áherslu á í lýðheilsu: reglulega hreyfingu, félagslega þátttöku og útiveru í náttúrulegu umhverfi. Samspil þessara þátta margfaldar ávinninginn umfram það sem hreyfingin ein skilar.
Klúbbarnir eru samfélagslegir innviðir
Á Íslandi eru 63 golfklúbbar, frá höfuðborgarsvæðinu, þar sem 17 klúbbar þjóna um 17 þúsund félögum, til Vestfjarða og Austurlands, þar sem sex klúbbar eru í hvorum landshluta. Skýrslan lýsir klúbbunum sem mikilvægum samfélagslegum innviðum. Þeir skapa aðgengi að hreyfingu og útivist í nærumhverfi fólks, og klúbbhúsin eru víða samkomustaðir þar sem haldin eru mót, viðburðir og fundir.
Starfið byggir að stórum hluta á sjálfboðaliðum. Með því skapa klúbbarnir verðmæti sem ná langt út fyrir íþróttina sjálfa og styrkja félagsauð, tengsl og lífsgæði í þeim samfélögum sem þeir þjóna. Þetta er kjarninn í starfi ungmennafélagshreyfingarinnar: öflugt félagsstarf í heimabyggð sem stendur öllum opið.
Þetta sýnir skýrslan
- Konur eru þriðjungur kylfinga. Af 29.370 félagsmönnum í golfklúbbum árið 2025 voru 66% karlar og 34% konur. Fyrst ávinningurinn af golfi fyrir líkamlega og andlega heilsu er jafn mikill og skýrslan sýnir, er augljóst tækifæri í að ná til fleiri kvenna.
- Börn og unglingar eru fámennur hópur. Samkvæmt tölum í skýrslunni eru 422 börn yngri en tíu ára og 3.649 börn og unglingar á aldrinum 10–18 ára skráð í golfklúbba, samtals um 4.100 eða um 14% félagsmanna. Íþrótt sem fólk getur stundað alla ævi er kjörin til að byggja upp hreyfivenjur snemma, og því meira sem klúbbarnir ná til ungs fólks, því lengur skilar fjárfestingin sér.
- Þátttakan er misjöfn eftir landshlutum. Hlutfall íbúa sem spila golf er 13,8% á Suðurlandi og 11,7% á Vesturlandi, en 5,2% á Norðausturlandi og 4,2% á Austurlandi. Í minni byggðarlögum hvílir starfið á fáum herðum, og þar getur stuðningur héraðssambanda og sveitarfélaga skipt sköpum.
- Kostnaður getur verið hindrun. Meðalkylfingur ver um 536 þúsund krónum á ári til golfiðkunar samkvæmt skýrslunni. Upphæðin segir sitthvað um það virði sem kylfingar telja sig fá, en hún minnir líka á mikilvægi þess að halda aðgengi opnu, til dæmis með kynningarverði, nýliðastarfi og barna- og unglingastarfi.
Hægt að lesa enn meira í skýrslu KMPG: