Lögðu línurnar fyrir landsmót á næsta ári
Mikill hugur er í fólki á Suðurlandi fyrir Landsmóti UMFÍ 50+ þegar það fer fram á Hellu á næsta ári.
Framkvæmdanefnd mótsins settist niður til fundar í síðustu viku og skipaði niður í hlutverk. UMFÍ heldur mótið í samstarfi við Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) og Rangárþing ytra.
Nefndina skipa:
- Frá HSK: Guðmundur Jónasson, Guðríður Aadnegard, Anný Ingimarsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir.
- Frá Umf. Heklu: Ástþór Jón Ragnheiðarson og Ösp Viðarsdóttir.
- Frá Rangárþingi ytra: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson og Jóhann G. Jóhannsson.
- Fulltrúi UMFÍ: Ragnheiður Högnadóttir.
Á þessum fyrsta fundi nefndarinnar var samþykkt að Guðmundur verði formaður og Anný ritari. Rætt var um ýmis verkefni í aðdraganda móts, ætlunin er að kynna það fyrir þátttakendum og mótsgestum á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fer fram í Hrafnagilshverfi nú í lok júní, rætt var um keppnisgreinar og kynningu fyrir fyrirtæki í Rangárþingi varðandi mögulegt samstarf og stuðning við mótið.
Góð skráning
Eins og áður segir fer Landsmót UMFÍ 50+ fram eftir nokkra daga. Það er í samstarfi við Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE) og sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit.
Skráning er í fullum gangi og er hún afar góð. Opið er fyrir skráningu fram til loka dags föstudaginn 19. júní.
Allar upplýsingar um mótið er að finna á vefsvæði Landsmóts UMFÍ 50+: