Fara á efnissvæði
28. apríl 2026

Lokað fyrir umsóknir í Skólabúðum UMFÍ

Hátt í 100 grunnskólar um allt land hafa sótt um dvöl fyrir nemendur í 7. bekk í Skólabúðum UMFÍ á næsta skólaári, það er 2026 - 2027. Aðsóknin er afar góð og búið að loka fyrir umsóknir um vist í þeim. 

Ef einhver vill komast að í búðunum þarf að senda skeyti á eins fljótt og auðið er á netfangið siggi@umfi.is

Skólabúðir UMFÍ á Reykjum eru ætlaðar nemendum í 7. bekk grunnskóla af öllu landinu. Nemendurnir dvelja í búðunum frá mánudegi til fimmtudags í líflegu óformlegu námi í fallegu og skapandi umhverfi.
 

Afar góð aðsókn

Aðsókn í skólabúðirnar hefur verið afar góð og aukist talsvert í gegnum árin enda fá þar nemendur tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni og sjálfsmynd sína og vinna með styrkleika sína.

Jafnframt er eftirsótt að dvelja í Skólabúðum UMFÍ því þar fá nemendur hvíld frá venjulegum dögum, fræðandi óformlegt nám, heilmikla upplifun og verða hvorki fyrir truflun frá farsímum og öðrum nettengjanlegum tækjum.

Aðeins skólastjórnendur grunnskóla geta bókað þátttöku í Skólabúðum UMFÍ. Ætlast er til að uppistaða fararstjórateymis séu kennarar nemenda sem bókað er fyrir. Þegar sótt er um þarf að tilkynna hver verður aðalfararstjóri og ber ábyrgð á undirbúningi nemenda og fararstjórateymis.