Meta heilsu sína betur en áður
Bakslag var á heilsu og afkomu landsmanna árinu 2023 til 2025. Nýjustu niðurstöður lýðheilsuvísa Embættis landlæknis benda til að það hafi gengið að mestu til baka. Heilsa batnar. Öðru máli gegnir um hreyfingu barna og ungmenna. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýjustu lýðheilsuvísum Embættis landlæknis.
Embætti landlæknis birti lýðheilsuvísa ársins 2026 þann 16. september. Vísarnir eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan landsmanna og eru reiknaðir niður á heilbrigðisumdæmin sjö og tíu stærstu sveitarfélög landsins.
Skýrasta niðurstaðan í nýju tölunum er sameiginleg sveifla sem nær til allra landshluta. Hlutfall fullorðinna sem metur andlega heilsu sína sæmilega eða lélega fór úr 29,7% árið 2022 upp í 33,4% árið 2024 og er nú komið í 30,0%. Hlutfall þeirra sem meta líkamlega heilsu sína sæmilega eða lélega fór úr 36,4% í 41,3% og mælist nú 38,4%. Fjárhagserfiðleikar fylgja sama ferli: 14,6% árið 2022, 19,4% árið 2024 og 15,5% nú.
Fjárhagurinn er þar með kominn nákvæmlega á sama stað og fyrir fimm árum og andleg heilsa næstum því.
Líkamlega heilsan hefur hins vegar ekki náð sér að fullu — 38,4% er enn tveimur prósentustigum verra en árið 2022.
Fleiri vísar þokast í rétta átt. Áhættudrykkja fullorðinna mælist 20,4% og hefur ekki mælst lægri á tímabilinu.
Nokkur munur er á milli heilbrigðisumdæma í þessu eins og öðru.
Færri nota nikótínpúða
Mesta breytingin varðar notkun nikótínpúða. Í hópi framhaldsskólanema fór notkunin úr 22,8% árið 2021 upp í 24,9% árið 2023 og svo niður í 12,3% að meðaltali árið 2025. Flestir framhaldssskólanemar notuðu nikótínpúða á Norðurland eða 15,7% en fæstir á höfuðborgarsvæðinu eða 11,1% spurðra.
Rafrettur virðast ekki hafa tekið við. Notkun þeirra meðal tíundubekkinga mælist 3,6% árið 2026 og er hvergi marktækt frábrugðin landsmeðaltali. Reykingar fullorðinna eru orðnar svo fátíðar — 5,7% árið 2023.
Spurt um er um ýmsa fleiri þætti í lýðheilsuvísunum, svo sem um notkun orkudrykkja. Hópur svarenda er hins vegar misjafn milli ára og ekki hægt að draga ályktanir af þróun orkudrykkjanotkunar yfir nokkurra ára tímabil. Orkudrykkjaneysla framhaldsskólanema árið 2018 stóð í 54,6% árið 2018. Nemendur í 10. bekk voru spurðir út í neysluna á síðasta ári og stóð hlutfallið þá í 23,9%
Færri nota nikótínpúða
Mesta breytingin varðar notkun nikótínpúða. Í hópi framhaldsskólanema fór notkunin úr 22,8% árið 2021 upp í 24,9% árið 2023 og svo niður í 12,3% að meðaltali árið 2025. Flestir framhaldssskólanemar notuðu nikótínpúða á Norðurland eða 15,7% en fæstir á höfuðborgarsvæðinu eða 11,1% spurðra.
Rafrettur virðast ekki hafa tekið við. Notkun þeirra meðal tíundubekkinga mælist 3,6% árið 2026 og er hvergi marktækt frábrugðin landsmeðaltali. Reykingar fullorðinna eru orðnar svo fátíðar — 5,7% árið 2023.
Spurt um er um ýmsa fleiri þætti í lýðheilsuvísunum, svo sem um notkun orkudrykkja. Hópur svarenda er hins vegar misjafn milli ára og ekki hægt að draga ályktanir af þróun orkudrykkjanotkunar yfir nokkurra ára tímabil.
Orkudrykkjaneysla framhaldsskólanema árið 2018 stóð í 54,6% árið 2018. Nemendur í 10. bekk voru spurðir út í neysluna á síðasta ári og stóð hlutfallið þá í 23,9%.
Rafrettur virðast ekki hafa tekið við. Notkun þeirra meðal tíundubekkinga mælist 3,6% árið 2026 og er hvergi marktækt frábrugðin landsmeðaltali. Reykingar fullorðinna eru orðnar svo fátíðar — 5,7% árið 2023.
Hreyfingin fylgir ekki með
Meðan flestir liðir í Lýðheilsuvísunum batna stendur hreyfing barna og ungmenna í stað. Hlutfall unglinga sem hreyfir sig samkvæmt ráðleggingum mælist 23,6% árið 2026, sem er hæsta gildi tímabilsins. Röskleg hreyfing og íþróttir barna í 7. bekk mælist á sama tíma 76%. Engu að síður ná þrír af hverjum fjórum unglingum ekki ráðlagðri daglegri hreyfingu.
Virkur ferðamáti var á sama tíma nokkuð öflugri því hlutfall barna í fjórða bekk sem gengur eða hjólar í skólann fór úr 50,3% skólaárið 2023–24 í 53,6% skólaárið 2025–26. Það er töluverð aukning aukning á milli ára.
Munur milli landshluta
Vestfirðir skera sig úr og gefa tilefni til athugunar. Umdæmið mælist lægst á landinu í hreyfingu unglinga (14,1%), í íþróttaiðkun sjöundubekkinga (50,9% á móti 76,0% á landsvísu) og í íþróttaiðkun barna í fyrsta bekk (63,2%). Árið 2022 voru Vestfirðir hins vegar hæstir allra umdæma í þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi.
Suðurland er hæst allra umdæma í hreyfingu unglinga en langlægst í virkum ferðamáta, þar sem aðeins 34,5% barna í fjórða bekk ganga eða hjóla í skólann. Á Suðurnesjum mælast mestu fjárhagserfiðleikarnir fjórða árið í röð, minnsta samveran með foreldrum og næstmesta eineltið, þótt íþróttaþátttaka sé þar á pari við landsmeðaltal.
Lýðheilsuvísarnir 2026
Hér er hægt að skoða lýðheilsuvísana 2026 skipt upp eftir heilbrigðisumdæmum og tíu stærstu sveitarfélögum landsins.
Lýðheilsuvísa í gegnum árin er hægt að skoða hér:
Heilbrigðisumdæmi
Sveitarfélög