Mikil spenna fyrir landsmótinu á Hellu
„Það er mikil spenna fyrir Landsmóti UMFÍ 50+ á Hellu næsta sumar og heilmikil gleði í loftinu,“ segir Guðríður Aadnegard, formaður Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK). Hún skrifaði á miðvikudag undir samning um að HSK haldi Landsmót UMFÍ 50+ á Hellu næsta sumar. Undir samninginn skrifuðu líka Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ og Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, sveitarstjóri Rangárþings ytra.
Skrifað var undir samninginn á fundi framkvæmdanefndar sem hefur fundað nokkrum sinnum við undirbúning mótsins sem verður á næsta ári. Undirbúningurinn hefur gengið vel og er búið að ákveða flestar keppnisgreinar.
Guðmundur Jónasson, formaður framkvæmdanefndar, segir að auk klassískra greina verði í boði starfsgreinar á borð við keppni í dráttarvélaakstri, pönnukökubakstri, stafsetningu, plöntugreiningu og gróðursetningu, en í þeirri grein er keppt að því að vera sem fljótastur að planta trjánum. Ein nýju greinanna er keppni í hestadómum. Sú grein felur í sér að viðurkenndur hestadómari dæmir einn ákveðinn hest. Keppnin felst svo í því að keppendur meta sama hest og felst keppnin í því að komast sem næst mati dómarans. Keppni í þessari grein svipar til hrútadóma á mörgum mótum.
Hinar greinarnar sem þátttakendur mótsins gjörþekkja eru greinar eins og boccía, golf og pútt, pokavarp, ringó, bridds og borðtennis, sund og göngufótbolta, skák, stígvélakast, frjálsar íþróttir og margt fleira.
Eins og staðan er nú er stefnt á að bjóða upp á í kringum 22 greinar.
Öðruvísi mót
„Við erum að vinna í því að Landsmót UMFÍ 50+ verði öðruvísi mót en fólk á að venjast og ætlum að höfða til fólks sem vill keppa í einhverju öðru skemmtilegu en boðið er alla jafna upp á. Ég er mjög bjartsýnn á að margir muni keppa í stafsetningu,“ segir Guðmundur og bætir við að hann beri miklar vonir til greinarinnar. Það sé grein sem muni höfða til fleiri en sjónvarpsaðdáenda.
„Við vinnum að því að hafa sem flestar greinar á sama blettinum, hér er nefnilega búið að byggja mikið upp í kringum splunkunýjan grasvöll,“ segir hann en bætir við að tvær greinar fari fram í nágrenni Hellu. Keppni í golfi fer samt fram á Golfvellinum Strönd, sem er í nokkurra mínútna fjarlægð frá Hellu, auk skotfimi, sem fer fram á sérstöku skotsvæði utan við bæinn.
Hressleiki fyrir 50 ára og eldri
Landsmót UMFÍ 50+ sem hressilegt mót fyrir öll þau sem fagna 50 ára afmæli á árinu og leita eftir viðburði sem samanstendur af samskiptum og kynnum af nýju fólki auk keppni í ýmsum skemmtilegum greinum. Mótið hefur verið haldið svo til árlega frá því það fyrsta fór fram á Hvammstanga árið 2011 og er þetta 15. mótið.
Mótsgestum hefur fjölgað töluvert í gegnum árin og fleiri hópar hafa skráð sig til leiks. Sem dæmi var mikil fjölgun í keppni í ringó í Hrafnagilshverfi í sumar. Þar voru 16 lið skráð til leiks, 37 kepptu í pokavarpi og svo má lengi telja.
Mikill fjöldi skráði sig sömuleiðis á matar- og skemmtikvöldið sem fram fór í mathúsinu Vitanum á Akureyri á laugardagskvöldinu. Það er orðið ómissandi hluti af hverju móti.
Allar upplýsingar um mótið verður að finna á vefsvæði UMFÍ: