Fara á efnissvæði
14. apríl 2026

Minnum á umsóknir í sjóði

Nú er heldur betur farið að styttast í að umsóknarfrestir renni upp í tveimur sjóðum. Á morgun er 15. apríl og er það síðasti dagur til að senda inn umsóknir í Umhverfissjóð UMFÍ. Um mánaðamótin rennur svo upp frestur fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. Fresturinn er til og með 1. apríl.

 

Umhverfissjóður UMFÍ

Umhverfissjóður UMFÍ styrkir umhverfisverkefni félaga eða einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Skilyrði fyrir styrkjum er að styrkþegi sé félagi/félag í UMFÍ og verkefnið sé umhverfisverkefni. 

Meira um Umhverfissjóð UMFÍ hér

 

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ

Fræðslu- og verkefnasjóður styrkir félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi. 

Hverjir geta sótt um í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ?

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem talið er að geti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.

Úthlutun úr Fræðslu- og verkefnasjóði vegna umsókna að vori er 1. maí.

Allt um Fræðslu- og verkefnasjóð hér