Öllum boðið að taka þátt í að skapa samfélag
Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Fjallað verður um spurninguna á viðburðinum Samtalið, sem fer fram um allt land laugardaginn 10. október að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Hugmyndin að Samtali kviknaði í borðstofunni á Bessastöðum en hefur síðan vaxið og orðið að sameiginlegu verkefni margra. Fjöldi einstaklinga kemur nú að undirbúningi þess ásamt ungu fólki, skólum, samtökum og stofnunum um allt land.
Meðal þeirra sem styðja Samtal og leggja verkefninu lið eru: UMFÍ og Embætti forseta Íslands, fjármálaráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Bandalag íslenskra skáta, Félag framhaldsskólanema, Skólameistarafélag Íslands, Landssamband íslenskra stúdenta, Riddarar kærleikans og Heimili og skóli.
Öllum boðið að taka þátt
Framhaldsskólarnir verða lykilvettvangur Samtalsins en hægt er að skipuleggja samtal á eigin vegum og á vettvangi félaga og samtaka hvar sem er á landinu.
Fólki á öllum aldri er boðið að taka þátt enda er markmiðið að skapa raunverulegt samtal kynslóða. Það væri ómetanlegt ef félagar í þeim fjöldasamtökum sem styðja við verkefnið tækju þátt í sjálfu Samtalinu og skipulagningu þess í sínu nærsamfélagi.
Heiminum ekki breytt á einum degi
Ungt fólk á aldrinum 16–30 ára er sérstaklega hvatt til að gefa kost á sér sem leiðbeinendur eða lóðsar Samtalsins. Þau sem taka hlutverkið að sér munu fá þjálfun og stuðning til að leiða Samtalið og samtalsramma til að styðjast við.
Dýrmætt sé að hafa lóðsa sem geta hjálpað fólki með ólíkan bakgrunn og á ólíkum aldri að ræða saman af virðingu og einlægni. Gert er ráð fyrir þjálfun fyrir lóðsa að mestu fyrripart dags 10. október en sjálft Samtalið fer fram eftir hádegi frá kl. 14–17.
Haft er eftir Höllu að hún voni að sem flest taki þátt í Samtalinu – og að mörg bjóðist til að leiða það. Skráning er á talasaman.is og þar má líka nálgast ítarlegri upplýsingar.
„Við breytum ekki heiminum á einum degi en orð eru til alls fyrst og vonin vex þegar við tökum virkan þátt,“ skrifar forseti Íslands.
Hægt að taka þátt sem þjálfari
Þjálfar samtalsins styðja við ungmennin sem leiða umræðuna á hverju borði. Verkefni þjálfa er tvíþætt þann 10.október. 1) Að þjálfa ungmenni (lóðsa) að morgni 2) Að styðja við framkvæmd samtalsins eftir hádegi og aðstoða lóðsa eftir atvikum. 3) Aðstoða lóðsa við að skila inn gögnum í lok samtals.
Öll sem hafa áhuga á að styðja við viðburðin, hafa áhuga og reynslu af félagsmálum og eru eldri en 25 ára geta gerst þjálfar.
Best væri að hver staður sem býður upp á samtalið hafi þjálfa úr nærsamfélagin.
Þjálfar fá undirbúningsþjálfun vikuna fyrir samtalið.
Vinsamlegast skráið ykkur á þá þjálfun sem hentar best og látið vita ef það vantar þjálfun í ykkar bæjarfélagi.
Vefsvæði viðburðarins: https://talasaman.is/
Hér er skráningarform fyrir þjálfa: https://forms.cloud.microsoft/e/3mzGfGz5Va
Athugið að einnig þarf að skrá sig með sama netfangi á: talasaman.is/thjalfar.
Nánari upplýsingar um samtalið má finna hér: https://talasaman.is/heima/upplysingar