Opinn fundur um þátttöku barna
Umboðsmaður barna stendur fyrir opnum fundi um þátttöku barna í íþróttastarfi á föstudag, 20. nóvember. Viðburðurinn er haldinn á Alþjóðlegum mannréttindadegi barna og í samstarfi við Hagstofu Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ). Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands á milli klukkan 12:00 til 13:15.
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, opnar fundinn. Fulltrúar Hagstofunnar, ÍSÍ og UMFÍ kynna síðan fyrstu niðurstöður nýrrar greiningar á þátttöku barna í íþróttum. Í greiningunni eru upplýsingar um skráða iðkun tengdar við gögn um félagslegar aðstæður barna. Með því móti sést hvernig þátttaka barna í skipulögðu íþróttastarfi skiptist eftir kyni, aldri, uppruna, búsetu og efnahag fjölskyldna.