Óskar og Brynja heiðruð á þingi UÍF
„Þetta var rólyndisþing og þetta var mjög fallegt, hugljúft og virkilega flott,“ segir Óskar Þórðarson, formaður Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar (UÍF), um ársþing sambandsins sem fram fór í síðustu viku. Óskar tók sæti í stjórninni fyrir ellefu árum og varð formaður árið 2022. Hann gaf út í fyrra að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér áfram. Aðstæður breyttust og ætlar hann að sitja eitt ár í viðbót.
Þingið var vel sótt. Fyrir utan heiðranir var þar tekið undir með ályktun KSÍ um ferðakostnað, að sögn Óskars.
Óskar og Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir, starfsmaður stjórnar UÍF, voru heiðruð á þinginu. Brynja hlaut starfsmerki UMFÍ en Óskar Gullmerki UMFÍ. Auk þess fékk hann sérstaka viðurkenningu og þakklætisvott frá UÍF fyrir óeigingjarnt starf og framúrskarandi framlag til íþróttastarfs í héraðinu, sem heldur innifelur allt íþróttastarf á Siglufirði og Ólafsfirði.
Þau höfðu líka ástæðu til að fagna því UÍF hlaut á sama tíma viðurkenningu sem fyrirmyndarhérað ÍSÍ.
Litlar breytingar urðu á stjórn. Óskar situr áfram en Arnheiður Jónsdóttir fór út fyrir Huldu Teitsdóttur. Aðrar breytingar voru tilfærslur á varafólki innan stjórnar.