Fara á efnissvæði
08. júní 2026

Sigríður er nýr formaður HSV

Sigríður Gísladóttir var kosin formaður Héraðssambands Vestfirðinga (HSV) á ársþingi sambandsins sem fram fór í félagsheimilinu á Þingeyri í lok maí. Hún tók þar við af Sigurði Gunnari Þorsteinssyni, sem settist í formannsstólinn í fyrra.

Þátttakendur á þinginu voru tæplega 30 talsins.

Guðný Stefanía Stefánsdóttir var fulltrúi UMFÍ á þinginu. Hún situr í stjórn UMFÍ og er búsett á Ísafirði. Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ var fulltrúi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Willum afhenti Skíðafélagi Vestfirðinga gæðavottun sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

Þau ávörpuðu þingið bæði.

Fyrir þinginu lágu tillögur meðal annars um lagabreytingar, reglur um skiptingu styrkja til aðildarfélaga innan HSV, um kjör íþróttamanns Ísafjarðarbæjar og um æfinga- og keppnisaðstöðu hestamannafélagsins Hendingar. 

Breytingartillögu stjórnar á lögum HSV var lítillega breytt og samþykkt, en breytingarnar sneru að allflestum greinum laganna. Tillaga að reglum um skiptingu styrkja til aðildarfélaga innan HSV var samþykkt óbreytt. Samþykkt var að vísa tillögu vegna kjörs Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar til stjórnar HSV, sem vinnur hana áfram.

Þá var tillaga samþykkt um að endurvekja samtal við Ísafjarðarbæ um aðstöðumál Hendingar með það að markmiði að gera félaginu kleift að byggja upp öflugt starf innan þess.

 

Ný stjórn HSV

Ný stjórn var kosin á þinginu. Guðbjörg Ebba Högnadóttir og Kristinn Ísak Arnarson sitja áfram en þau voru kosin í aðalstjórn til tveggja ára á ársþingi 2025. Úr stjórn gengu Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Magnús Þór Bjarnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir og Árni Elíasson. 

Sigríður Gísladóttir var kjörin formaður HSV. Þau Pálína Ingibjörg Jónmundsdóttir og Þráinn Ágúst Arnaldsson voru kosin í aðalstjórn til tveggja ára. Svala Sif Sigurgeirsdóttir, Grétar Örn Eiríksson og Hákon Dagur Guðjónsson voru kosin í varastjórn.

Nýju stjórnina má sjá á myndinni hér að ofan. Á myndina vantar hins vegar þau Kristinn Ísak og Hákon Dag.

 

Tveir sæmdir silfurmerki

Á þinginu voru þeir Sigurður Jón Hreinsson og Gísli Jón Hjaltason sæmdir silfurmerki HSV. Þeir hafa báðir verið þátttakendur í íþróttastarfi Ísafjarðar um árabil og sátu í undirbúningshópnum sem stofnaði íþróttafélagið Vestra. Báðir sátu þeir í aðalstjórn sameinaðs félags.

Sigurður Jón hefur verið öflugur í störfum sínum fyrir Blakdeild Vestra og þar á undan Blakfélagið Skell. Hann á að baki langa stjórnarsetu í blakinu og hefur verið formaður stóran hluta þess tíma. Hann sat um tíma í stjórn Blaksambands Íslands og Héraðssambands Vestfirðinga, þar sem hann gegndi embætti formanns. Sigurður var í undirbúningshópnum sem vann að stofnun íþróttafélagsins Vestra og var kosinn í aðalstjórn félagsins á stofnfundinum 16. janúar 2016. Átti hann þar sæti til ársins 2020 þegar hann tók við formennsku í blakdeildinni að nýju. 

Gísli Jón var formaður knattspyrnufélagsins BÍ/Bolungarvík síðustu árin áður en félagið gekk inn í Vestra og sat í undirbúningshópnum sem vann að því að sameina íþróttafélög á svæðinu í eitt stórt fjölgreinafélag sem leiddi til stofnunar Íþróttafélagsins Vestra 16. janúar 2016. Á stofnfundinum var Gísli Jón kosinn í aðalstjórn félagsins þar sem hann hefur gegnt stjórnarstörfum fram á þennan dag. Gísli Jón hefur alla tíð látið sér annt um íþróttastarf á svæðinu og lagt sitt af mörkum til að það fái vaxið og dafnað. Fyrir íþróttahreyfinguna er hann mikilvægur liðsmaður og fyrirmynd í vinnusemi og samfélagslegri ábyrgð.  

Mynd af þeim Sigurði Jóni og Gísla Jóni má sjá hér að neðan.