Fara á efnissvæði
15. apríl 2026

Sigurður sæmdur Gullmerki UMFÍ


Héraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF) fór fram þann 10. apríl 2026 í Félagsheimili Patreksfjarðar þar sem fulltrúar aðildarfélaga og gestir komu saman til að fara yfir starfsemi liðins árs og móta áherslur til framtíðar. Styrktaraðilum HHF var jafnframt boðið auk þess sem handboltakappinn Ólafur Stefánsson sat þingið en hann var með erindi á viðburði HHF fyrr um daginn.

Birna Friðbjört S. Hannesdóttir, formaður HHF, setti þingið, sem var hefðbundið og lá tiltölulega lítið fyrir á því.

Á þinginu voru samþykktar lagabreytingar ásamt úthlutunarreglum um nýjan Verkefna- og búnaðarsjóð og reglur um stjórn sjóðsins, sem ætlað er að styrkja enn frekar starfsemi aðildarfélaga og skapa skýrari umgjörð um stuðning við verkefni og uppbyggingu.

Einnig var kynnt vinna starfshópa, meðal annars um framtíðarskipulag íþróttastarfs barna og ungmenna þar sem stefnt er að aukinni samhæfingu og sameiningu íþróttafélaga undir einni heild. Einnig var stefnumótunarvinna um íþróttamál á Vestfjörðum kynnt og starfshópur sem hefur unnið að framkvæmd og uppsetningu götu- og víðavangshlaupa á sunnanverðum Vestfjörðum. Fyrsta löglega götuhlaupið verður haldið um sjómannadagshelgina í ár, hið svokallaða Eyfahlaup. 

Reikningar sambandsins voru samþykktir samhljóða að loknum umræðum. Stjórn HHF var endurkjörin að mestu. Marion Worthman gaf ekki kost á sér áfram sem varamaður í stjórn. Í hennar stað kom Halldór Jökull Ólafsson. 

Guðný Stefanía Stefánsdóttir var fulltrúi UMFÍ á þinginu. Hún hélt þar ávarp og lagði í því ríka áherslu á mikilvægi íþróttastarfs fyrir samfélagið, gildi sjálfboðaliðastarfs og áskoranir tengdar breyttum tekjustofnum í íþróttahreyfingunni. 

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, hélt sömuleiðis ávarp og lagði í því áherslu á að íþróttir eru lykilþáttur í lýðheilsu. Mikilvægt sé að stjórnvöld og íþróttahreyfingin vinni þétt saman að uppbyggingu starfsins.

 

Heiðranir

Á þinginu voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi framlag til íþróttastarfs á svæðinu. Sigurður Viggósson var sæmdur Gullmerki UMFÍ fyrir langvarandi og öflugt framlag til íþrótta. Þau Lilja Sigurðardóttir og Skjöldur Pálmason fengu jafnframt starfsmerki UMFÍ fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþróttamála. Guðný Stefanía afhenti allar heiðranir UMFÍ. 

Þá hlaut Þórður Sveinsson silfurmerki ÍSÍ fyrir starf í þágu íþrótta í áratugi, meðal annars sem formaður UMFB í um 30 ár. Ásgeir Sveinsson, framkvæmdastjóri HHF, var sömuleiðis sæmdur Eirmerki Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) fyrir framlag sitt til frjálsíþrótta á sambandssvæði HHF. Willum afhenti Ásgeiri merkið fyrir hönd FRÍ.

 

Fyrirmyndarhérað

Einn af hápunktum þingsins var þegar Willum afhenti forsvarsfólki HHF viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. Með viðurkenningu er staðfest að HHF uppfyllir þau gæðaviðmið sem gerð eru til íþróttahéraða, meðal annars um fagleg vinnubrögð, skipulag og markvissa þróun íþróttastarfs.

Frá því segir á heimasíðu HHF að með viðurkenningunni er jafnframt lögð áhersla á áframhaldandi uppbyggingu þar sem markmiðið er að styðja aðildarfélög til að þróast áfram sem Fyrirmyndarfélög og þannig efla enn frekar öflugt og samræmt íþróttastarf á svæðinu.

Við afhendinguna var lögð áhersla á að viðurkenningin væri ekki endastöð heldur mikilvægt skref í áframhaldandi vegferð. Markmiðið er að byggja upp sjálfbært og vandað íþróttastarf sem hefur jákvæð og varanleg áhrif á samfélagið og lífsgæði íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum.

 

Hér að neðan má sjá fleiri myndir af þinginu.