Fara á efnissvæði
13. maí 2026

Skráning er hafin á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsu 2026

Blómsturm. Styrkjumst. Tengjumst!

Skráning er nú hafin á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsa 2026 sem fram fer í Skólabúðum UMFÍ að Reykjum í Hrútafirði dagana 18.–20. september næstkomandi.

Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 15–25 ára alls staðar af landinu og er markmið hennar að skapa vettvang þar sem ungmenni geta komið saman, rætt málefni sem snerta þeirra líf og heilsu, kynnst nýju fólki og öðlast nýja reynslu og innblástur.

Áhersla ráðstefnunnar í ár verður á lýðheilsu í víðum skilningi; andlega, líkamlega og félagslega heilsu. Fjallað verður meðal annars um samfélagsmiðla, skjánotkun, sjálfsmynd, tengsl, þátttöku, líðan og hvernig hægt sé að byggja upp heilbrigt og jákvætt samfélag fyrir ungt fólk.

Á dagskrá verða fjölbreyttir fyrirlestrar, vinnustofur, hópefli og opnar umræður þar sem þátttakendur fá tækifæri til að segja sína skoðun, hlusta á reynslu annarra og taka þátt í skapandi og skemmtilegri vinnu með öðrum ungmennum. Einnig verður lögð áhersla á félagslíf, samveru og góða stemningu yfir helgina.

Ráðstefnan hefur á undanförnum árum reynst mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að efla sjálfstraust sitt, tengslamyndun og samfélagsþátttöku. Þátttakendur koma úr ólíkum áttum og með mismunandi bakgrunn en sameinast í því að vilja hafa jákvæð áhrif á samfélagið sitt og eigið líf.

Viðburðurinn er skipulagður af Ungmennaráði UMFÍ í samstarfi við UMFÍ.

Takmarkaður fjöldi þátttakenda kemst að og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst.

Nánari upplýsingar um dagskrá, þátttökugjald og skráningu má finna hér

Sjá viðburð á Facebook hér