Fara á efnissvæði
17. september 2026

Svæðisstöðvar virkur hluti af samþættri þjónustu

Gert er ráð fyrir 520 milljóna króna framlagi frá mennta- og barnamálaráðuneyti til stuðnings við svæðisstöðvar íþróttahéraða á árunum 2027 til 2030. Þetta kemur fram í tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu í þágu farsældar barna til ársins 2030 sem lögð hefur verið fram á Alþingi. Málinu var vísað í nefndarstarf.

Svæðisstöðvarnar eru hluti af tillögum um framkvæmdaáætlunina. 

Guðlaugur Arnarsson, verkefnastjóri svæðisstöðva íþróttahéraðanna, segir þetta gríðarlega mikilvægt fyrir þá vinnu sem svæðisfulltrúarnir hafi unnið og undirstrika mikilvægi verkefnisins og því hvernig hægt er að mæta börnum í viðkvæmri stöðu í íþróttahreyfingunni.

„Svæðisfulltrúar á öllum svæðum hafa staðið sig virkilega vel og hafa komið að mörgum góðum verkefnum, en mikið verk er enn fyrir hendi og þessi öflugi hópur af svæðisfulltrúum mun sinna sínu hlutverki af mikilli ábyrgð og metnaði,“ segir hann.

 

Ná til barna í viðkvæmri stöðu

Með þessu verða svæðisstöðvarnar áfram virkur hluti af samþættri þjónustu í þágu farsældar barna. Markmiðið er að skapa forsendur til að auka þátttöku barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu í íþróttastarfi. Mælikvarðinn er skýr: við lok tímabilsins árið 2030 taki fleiri börn í viðkvæmri stöðu þátt í skipulögðu íþróttastarfi en við upphaf þess.

Tekið er fram í þingsályktunartillögunni að frá árinu 2024 hafi verið í gildi samkomulag ráðuneytisins við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands um stuðning við svæðisstöðvarnar. Samkvæmt því fjármagna íþróttahreyfingin og ráðuneytið sameiginlega stöðugildi svæðisfulltrúa. Hlutverk svæðisstöðvanna er að efla og samræma íþróttastarf á landsvísu og hefur starfsemi þeirra reynst mikilvæg til að styðja við markmið og hugmyndafræði laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Ein helsta áherslan í starfinu er að fjölga börnum og ungmennum í íþróttastarfi, með sérstakri áherslu á börn í viðkvæmri stöðu, það er börn með fötlun, börn frá tekjulágum heimilum og börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Tilteknir hópar barna eru líklegri en aðrir til að mæta hindrunum sem takmarka möguleika þeirra á þátttöku og þar með að njóta réttinda og tækifæra til jafns við aðra. Með markvissum aðgerðum á vettvangi íþróttastarfs má draga úr þessum hindrunum og stuðla að inngildingu.

Svæðisfulltrúar íþróttahreyfingarinnar hafa tekið virkan þátt í farsældarráðum landshluta og eru mikilvægir þátttakendur í samtali við aðra þjónustuveitendur farsældarþjónustu. Samstarfið stuðlar að því að íþróttastarf verði virkur hluti af samþættri þjónustu í þágu farsældar barna og efli félagslega þátttöku, vellíðan og jákvæða upplifun barna.

Í stefnunni kemur fram að framtíðarsýnin sé að Ísland verði barnvænt samfélag þar sem réttindi, velferð og öryggi barna séu ávallt sett í fyrsta sæti. Hún hvílir á sex stoðum: jafnræði, barnvænni nálgun og þátttöku, viðeigandi stuðningi, fræðslu, forvörnum og réttindum, framúrskarandi fagfólki og áreiðanlegum gögnum. Aðgerðin um svæðisstöðvarnar styður einkum við ákvæði barnasáttmálans um jafnræði, bestu hagsmuni barnsins og virka framkvæmd réttinda þess.

 

Sjá ítarefni: