Þakkað fyrir að hvetja aðra til þátttöku
Sex einstaklingum var þakkað fyrir virka þátttöku á Landsmóti UMFÍ 50+ í Hrafnagilshverfi um helgina og fyrir að hvetja aðra til að mæta á mótið. Þetta voru þau Flemming Jessen, Eygló Alexandersdóttir, Margrét Björnsdóttir, Karl Lúðvíksson, Steinunn Ingimundardóttir og Þorbergur Þórðarson.
Flemming er fyrrverandi íþróttakennari og hefur verið forkólfur Landsmóts UMFÍ 50+ frá upphafi ásamt því að vera sérgreinastjóri í boccía á mótunum um árabil.
Eygló hefur mætt á fjöldamörg mót lengi og síðustu árin tekið þátt í keppnum í pútti og pönnukökubakstri. Hún hefur oft átt bestu pönnukökurnar á mótinu og mótið nú um helgina var engin undantekning.
Margrét Björnsdóttir er formaður Íþróttafélagsins Glóðar í Kópavogi og ein þeirra sem kynntu ringó fyrir landsmönnum. Ringó hefur um árabil verið ein af fjölmennustu greinunum á Landsmóti UMFÍ 50+. Margrét keppti að sjálfsögðu í einu af liðum Glóðar á landsmótinu. Eitt liðanna lenti þar í fjórða sæti eftir hressilegan leik.
Íþróttakennarinn og júdóþjálfarinn Karl Lúðvíksson er þjóðþekktur á mótinu og hefur verið fastagestur á þeim eins og þau öll sem hlutu viðurkenningar á mótinu nú. Hann hefur tekið virkan þátt í mörgum greinum og er öflugur í frjálsum íþróttum, bæði nú sem fyrr. Karl varð fyrir áfalli fyrir nokkrum árum og lamaðist að hluta. Hann hefur snúið til baka af krafti og var með dóttur sína til halds og trausts á mótinu nú, sem tók upp keppni hans og kom með ábendingar.
Steinunn mætir sömuleiðis alltaf á Landsmót UMFÍ 50+ og hvetur aðra til þátttöku. Hún keppti fyrst á Landsmóti UMFÍ fyrir 70 árum og keppir nú m.a. í boccía með liði Gjábakka.
Þorbergur Þórðarson er, eins og þau öll, fastagestur á Landsmótum UMFÍ 50+. Hann hefur mætt árlega síðastliðin níu ár og látið til sín taka bæði í keppni í boccía og á dansgólfinu á matar- og skemmtikvöldum mótsins svo eftir er tekið.
Myndir frá mótinu
Fjölmargar myndir voru teknar á Landsmóti UMFÍ 50+ í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit um helgina. Þær er m.a. hægt að nálgast undir myndasafni UMFÍ eftir greinum:
Myndasöfn á Facebook eftir greinum
Ýmsar myndir frá mótinu.