Fara á efnissvæði
23. nóvember 2026

Þjóni hreyfingunni best til framtíðar

„Við eigum hvorki að spyrja hvað þjóni ÍSÍ best né hvað þjóni UMFÍ best. Við eigum að spyrja hvað þjóni íslenskri íþróttahreyfingu best til framtíðar,” sagði Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, í ávarpi sínu á formannafundi ÍSÍ sem fram fór á föstudag. Hann lagði þar áherslu á samstarf innan hreyfingarinnar en varaði jafnframt við því að fjármögnun skipulagðs íþrótta- og æskulýðsstarfs stefndi í ranga átt. 

Jóhann Steinar sagði samstarf ÍSÍ og UMFÍ hafa aukist verulega síðastliðin ár og sé nú orðið öflugt og náið. ÍSÍ og UMFÍ hafi stigið það mikilvæga skref að fara í sameiginlega stefnumótun fyrir íslenska íþróttahreyfingu. Sú vinna byggi á fjölda funda og vinnustofa um allt land með fólki úr allri hreyfingunni, þar á meðal ungmennum. Hann sagði niðurstöðurnar ekki endapunkt heldur upphaf næsta kafla. Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna væru dæmi um árangur samstarfsins. Þar hefði iðkendum fjölgað og nýir þjónustusamningar orðið til við víða. 

Á formannafundinum kynnti Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Expectus, drög að sameiginlegri stefnumótun og tillögum að sviðsmyndum. Í framhaldinu verða skipaðir vinnuhópar sem vinna að útfærslu tillagnanna fram til febrúar á næsta ári.  

 

Langtímasamningar skipta máli 

Jóhann Steinar sagði að þrátt fyrir góða vinnu séu blikur eru á lofti. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 hækka framlög til íþrótta- og æskulýðsmála um 28 prósent, en rúmur helmingur fjárins fer í Þjóðarhöll. Að henni frátalinni lækkar framlag til skipulagðs íþróttastarfs um tæp 13 prósent að raunvirði. Ferðasjóður íþróttafélaga fer úr 227 milljónum króna í 127 milljónir og Æskulýðssjóður fær helmingi minna en í ár.  

Hann kallaði eftir samningum ríkisins við hreyfinguna til lengri tíma en eins árs, enda byggist forvarnarstarf á samfellu. Þá vildi hann ræða skattalegt umhverfi hreyfingarinnar, meðal annars endurgreiðslu virðisaukaskatts og launatengdra gjalda. 

Að lokum minnti hann á gildi UMFÍ, gleði, traust og samvinnu. Hann sagði ungmennafélagshreyfinguna koma að samtalinu með opnum huga: „Garðurinn okkar er stærri en hvert okkar um sig.“ 

 

Ávarp formanns UMFÍ í heild sinni:  

Ávarp á formannafundi ÍSÍ 

20. nóvember 2026 

 

Forseti ÍSÍ, fundarstjóri, heiðursforseti, ágætu formenn og aðrir góðir gestir.

Síðastliðin tvö ár hafa verið tíðindamikil hjá okkur í íþróttahreyfingunni. Samstarf ÍSÍ og UMFÍ hefur verið öflugt og náið og ýmislegt áunnist. Eitt af því mikilvægasta var ákvörðun okkar um að ráðast saman í stefnumótunarvinnu fyrir íslenska íþróttahreyfingu. 

Og í dag er komið að mikilvægum áfanga í þeirri vinnu. 

Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að sækja sjónarmið og reynslu víða að úr hreyfingunni. Sú kynning sem nú liggur fyrir byggir á vinnu sem átti sér stað víða um land. Á bak við hana liggja fjölmargir fundir, samtöl og vinnustofur með fólki úr allri íþróttahreyfingunni: formönnum og framkvæmdastjórum, starfsfólki, þjálfurum og sjálfboðaliðum, fólki úr íþróttahéruðum, sérsamböndum og félögum, stórum sem smáum. Mörg ykkar sem sitjið hér í salnum lögðuð ykkar af mörkum. 

Þið gáfuð tíma ykkar, miðluðuð reynslu og voruð hreinskilin. 

Fyrir það vil ég þakka sérstaklega. 

Það gleður mig líka hversu virkan þátt ungt fólk tók í verkefninu. Ungmennin sögðu okkur hvað skiptir þau máli. Hvað fær þau til að mæta. Hvað fær þau til að finna að þau tilheyri. Og hvað getur orðið til þess að þau hætti. Sjónarmið þeirra bætast við allar hinar raddirnar sem hafa mótað þessa vinnu og gera myndina af hreyfingunni bæði breiðari og sterkari. Við fengum ráðgjafa til að halda utan um verkefnið og leiða þessa umfangsmiklu vinnu. Hún hefur tekið saman það sem fram kom, greint helstu stef og dregið fram þá mynd sem birtist í ferlinu. Þar höfum við mikilvægt veganesti fyrir samtalið sem nú tekur við. Ekki endapunkt, heldur upphaf að næsta kafla. 

Það er nú okkar, fólksins í hreyfingunni sjálfri, að ræða niðurstöðurnar, vega og meta ólík sjónarmið og ákveða hvert framhaldið á að vera. 

Við þurfum ekki að vera sammála um hvert einasta atriði. 

En þegar við ræðum næstu skref eigum við hvorki að spyrja hvað þjóni ÍSÍ best né hvað þjóni UMFÍ best. 

Við eigum að spyrja hvað þjóni íslenskri íþróttahreyfingu best til framtíðar. Og þar skiptir máli að byggja á þeim ólíku styrkleikum, gildum og hlutverkum sem mynda þessa öflugu hreyfingu. 

Síðan kemur verkefnið sem mestu skiptir: Að láta þessa vinnu skila sér í starfinu. Til iðkenda. Til sjálfboðaliða og starfsfólks. Og til samfélagsins alls. 

Við þekkjum það líklega flest að rækta garð. Við ráðum ekki öllu um hvernig gróðurinn verður. Blómin eru ólík, trén líka og stundum þarf grasið sinn tíma. En við getum haft mikil áhrif á aðstæðurnar. Við getum hugað að jarðveginum, birtunni og vatninu. Og stundum þarf að skýla plöntum fyrir vindi. Við góð skilyrði fær gróðurinn tækifæri til að dafna.

Það sama á við um okkur í íþróttahreyfingunni. Við þurfum að skapa umhverfi þar sem flest finna sitt pláss. Þar höfum við öll hlutverki að gegna.

ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd, íþróttahéruð, félög, svæðisstöðvar og allt fólkið sem heldur starfinu gangandi dag frá degi. Styrkurinn felst ekki síst í því að þessir kraftar vinni saman. Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna eru gott dæmi um það. Þær hafa styrkt starf íþróttahéraðanna og aukið möguleika þeirra til að styðja við íþróttastarf á sínum svæðum. Við sjáum þess merki víða. 

Framboð íþrótta hefur aukist á stöðum sem búa við sérstakar áskoranir og iðkendum fjölgað. Þjónustusamningar hafa orðið til milli íþróttafélaga og sveitarfélaga þar sem slíkir samningar voru ekki áður fyrir hendi. Ný verkefni verða til og nýjar lausnir þróast. 

En við erum rétt að byrja. 

Íþróttahreyfingin er eitt öflugasta afl íslensks samfélags. Afl sem getur haft áhrif á það hvernig þjóðin lifir, hreyfir sig og líður. Til að sinna því hlutverki þurfum við traustan grunn undir starfið. 

En blikur eru á lofti. Í haust var lagt fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027. Við fyrstu sýn er myndin góð. Framlög til íþrótta- og æskulýðsmála hækka um 28 prósent. En þegar betur er að gáð fer rúmur helmingur fjármagnsins í byggingu Þjóðarhallar, eða 2,4 milljarðar króna á næsta ári. Ég gleðst yfir Þjóðarhöllinni. Við höfum beðið lengi eftir henni og hún er mikilvægt framfaraskref fyrir íslenskt íþróttalíf. En eitt glæsilegt mannvirki lætur ekki garðinn dafna. Það þarf líka að hlúa að því sem þar vex, dag eftir dag. Ef fjárlagafrumvarpið gengur eftir mun framlag hins opinbera til skipulags íþrótta- og æskulýðsstarfs lækka um næstum 10 prósent að nafnvirði milli ára og um tæp 13 prósent að raunvirði. Ferðasjóður íþróttafélaga fer úr 227 milljónum króna í 127 milljónir. Æskulýðssjóður fær helmingi minna milli ára. Samningar ríkisins við ÍSÍ, UMFÍ og Íþróttasamband fatlaðra standa í sömu krónutölu og í fyrra. Það þýðir raunlækkun.

Þegar Þjóðarhöllin er frátalin fer rétt rúmur einn tíundi úr prósenti af útgjöldum ríkissjóðs til íþrótta- og æskulýðsstarfs. Til að setja það aðeins í samhengi: Ég er 187 sentímetrar á hæð. Ef ég væri ríkissjóður fengju íþrótta- og æskulýðsmálin um tvo millimetra af mér. Ég væri í raun varla að lyfta litla putta. 

Og hlutfallið lækkar þriðja árið í röð. Þetta er þróun sem við verðum að bregðast við. Ekki vegna talnanna einna og sér. Heldur vegna þess sem þær þýða fyrir starfið. Í tilfelli UMFÍ hefur raunvirði almenns rekstrarframlags lækkað um 70 prósent á síðustu 15 árum og þróunin hefur einnig verið neikvæð hvað almennt rekstrarframlag til ÍSÍ varðar. 

Stjórnvöld þekkja ávinninginn af skipulögðu íþróttastarfi. Það kemur líka reglulega fram í umræðunni. Nú þurfa efndir að fylgja orðunum. Þetta snýst þó ekki aðeins um hversu mikið fjármagn rennur til íþróttahreyfingarinnar. Það snýst líka um hvernig stjórnvöld skapa henni skilyrði til að starfa. 

Íþróttastarf er ekki allt sama eðlis. 

Afreks- og meistaraflokksstarf hefur sitt mikilvæga hlutverk. Barna- og unglingastarf hefur annað og gegnir meðal annars veigamiklu samfélags- og forvarnarhlutverki. Þessi munur þarf að sjást í starfsumhverfinu. Þess vegna eigum við að ræða af fullri alvöru hvernig skattalegt og fjárhagslegt umhverfi hreyfingarinnar er byggt upp, meðal annars endurgreiðslu virðisaukaskatts og launatengdra gjalda. 

Ef stjórnvöld líta á skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf sem mikilvægan þátt í lýðheilsu og forvörnum þarf starfsumhverfið að endurspegla það. Það er verkefni sem ríkið og íþróttahreyfingin þurfa að takast á við saman. Íslenskt afreksíþróttafólk nær frábærum árangri og við eigum að vera stolt af því.

Á sama tíma eru blikur á lofti þegar kemur að daglegri hreyfingu barna og ungmenna. 27 prósent barna í 6. bekk ná viðmiðum um daglega hreyfingu. Í 10. bekk eru þau aðeins 20 prósent. Það þýðir að fjögur af hverjum fimm börnum í 10. bekk ná ekki viðmiðum um daglega hreyfingu. Og á þessum aldri missum við jafnframt töluverðan fjölda úr skipulögðu íþróttastarfi. Við getum verið stolt af afreksfólkinu okkar. En góður garður snýst ekki bara um það sem vex hæst. Þar þarf allt sem vex að fá tækifæri til að dafna. Þess vegna skiptir umhverfið sem börn og ungmenni alast upp í svo miklu máli. 

Aðgengi að áfengi, nikótíni, orkudrykkjum og veðmálum hefur aukist. Reglur eru að sumu leyti óskýrar og eftirlit veikt. Erlend veðmálafyrirtæki virðast fá að auglýsa starfsemi sína óáreitt. Í þessu umhverfi skiptir öflugt forvarnarstarf miklu máli. Og þar höfum við eitt sterkasta verkfæri sem völ er á: 

Skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf. Það þarf að efla. Við getum gert það saman sem öflug íþróttahreyfing. En til þess þurfum við framtíðarsýn. Við þurfum að geta horft lengra fram á veginn en til næstu áramóta. Í dag eru ríkisframlög til íþróttahreyfingarinnar almennt gerð til eins árs í senn. Nánast allir samningar sem birtast í fylgiriti fjárlagafrumvarpsins renna út á þessu ári. Á hverju hausti þarf hreyfingin því að leita aftur eftir fjármagni til verkefna sem eiga að skila árangri til langs tíma. 

Þarna rekast á tveir ólíkir tímarammar. 

Fjármögnunin nær eitt ár fram í tímann en verkefnin þurfa mörg ár til að skila árangri. Forvarnarstarf sem á að breyta hegðun, efla heilsu og bæta líðan byggist á samfellu. Slíkt starf verður ekki byggt upp með fjármögnun til eins árs í senn. Þú byggir ekki upp svæðisstöð á einu ári. Þú ræður ekki fólk til framtíðar með eins árs fyrirsjáanleika. Og þú metur ekki raunveruleg áhrif íþróttaþátttöku á heilsu og líðan barna út frá einu starfsári. 

Til þess þarf tíma. 

Þess vegna þurfum við að vera skýr: Opinber framlög til íþróttahreyfingarinnar þurfa að byggjast á samningum til lengri tíma en eins árs. Það skapar fyrirsjáanleika og gerir okkur kleift að skipuleggja til lengri tíma, byggja áfram á því sem virkar og meta árangurinn. Þetta er ekki bara kostnaður á einu fjárlagaári. Þetta er fjárfesting til framtíðar, samfélaginu til góða. 

Kæru vinir. 

Við í UMFÍ störfum eftir þremur gildum: 

Gleði. 
Trausti. 
Og samvinnu. 

Og þau eiga vel við hér í dag. 

Við þurfum ekki öll að sjá hlutina með nákvæmlega sama hætti. 

En við þurfum að geta talað saman af hreinskilni, hlustað hvert á annað og treyst því að við viljum öll gera íslenska íþróttahreyfingu sterkari. Þar liggur kraftur hreyfingarinnar. Við komum að henni úr ólíkum áttum, með ólíka reynslu og ólík hlutverk, en sameiginlegan vilja til að efla hreyfinguna. Saman getum við skapað aðstæður þar sem fleiri fá að taka þátt, fleiri finna sitt pláss og fleiri fá tækifæri til að dafna. Og þegar við ræðum næstu skref skulum við líka muna eitt: 

Það er ákvörðun að gera ekkert og því fylgir líka áhætta. 

Þess vegna kemur ungmennafélagshreyfingin að samtalinu með opnum huga, virðingu fyrir vinnunni sem hefur farið fram og einlægum vilja til áframhaldandi samstarfs. Það er sú kveðja sem ég færi ykkur frá stjórn og starfsfólki UMFÍ.

Og í þeim anda skulum við halda áfram að rækta garðinn okkar saman. Því garðurinn okkar er stærri en hvert okkar um sig. Hann nær um landið allt. 

Íslandi allt.