Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki í ár
Tækifærið var nýtt á Héraðsþingi Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) í gær til að skrifa undir samning um Unglingalandsmót UMFÍ, sem haldið verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina.
Á myndinni eru þeir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagafjarðar, Gunnar Þór Gestsson, formaður UMSS, og og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, um það leyti þegar þeir undirrituðu samninginn í gær.
Unglingalandsmót UMFÍ er íþrótta- og fjölskylduhátíð sem fram fer á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Mótið hefst á fimmtudegi og lýkur því á sunnudagskvöld.
Greinar mótsins
Boðið verður upp á 22 íþróttagreinar á daginn og heilmikla afþreyingu fyrir alla fjölskylduna frá morgni til kvölds.
Greinar mótsins
Badminton, bogfimi, borðtennis, frisbígolf, frjálsar íþróttir, glíma, golf, grasblak, grashandbolti, hestaíþróttir, hjólreiðar, judo, knattspyrna, kökuskreytingar, körfubolti, krakkahreysti, motocross, píla, skák, stafsetning, sund og upplestur.
Á mótinu er fjölskylduskemmtun fyrir alla aldurshópa, leikir og þrautir fyrir unga sem aldna. Tónlist, fjör og frábær stemming tekur völdin á kvöldin.
Verð og skráning
Opnað verður fyrir skráningu á mótið í sumar. Mótsgjald er 11.900 krónur.
Allar upplýsingar um mótið verða á umfi.is