Fara á efnissvæði
11. júní 2026

Vegleg 90 ára afmælisveisla Umf. Selfoss

Um 250 manns mættu í 90 ára afmælisveislu Ungmennafélags Selfoss sem haldin var á Hótel Selfossi 31. maí síðastliðinn. Félagið var stofnað 1. júní 1936.

Á veggjum hótelsins voru plaköt með svipmyndum úr sögu félagsins síðustu 15 ár. Auk þess voru ýmsir gamlir munir úr sögu félagsins til sýnis.

Gestir frá ÍSÍ, UMFÍ, KSÍ, FRÍ og SSÍ voru viðstaddir og ávörpuðu samkomuna. Veittar voru ýmsar heiðursviðurkenningar og Elínborg Gunnarsdóttir var útnefnd heiðursfélagi Umf. Selfoss.

Skúli Bragi Geirdal, varaformaður UMFÍ, flutti ávarp og sæmdi fjóra einstaklinga gullmerki UMFÍ. Þau hlutu: Björn Ingi Gíslason, Svanur Ingvarsson, Gísli Árni Jónsson og Kristinn M. Bárðarson. Auk þess veitti hann fjögur silfurmerki, en þau hlutu: Elínborg Gunnarsdóttir, Guðmundur Ingvarsson, Svanur Ingvarsson og Þórarinn Ingólfsson. 

 

Hér að neðan má sjá fleiri myndir úr afmælinu. 

Þar á meðal má sjá afhendingu Gullmerkis ÍSÍ, Starfsmerkis UMFÍ, Gullmerkis UMFÍ, afhendingu fjögurra gullmerkja og margt fleira. Hér er líka mynd af Elínborgu Gunnarsdóttur, sem var gerð að heiðursfélaga Umf. Selfoss fyrst kvenna. Hún var einmitt fyrsta konan sem kosin var formaður Umf. Selfoss.

Á efstu myndinni má sjá Björn Gíslason veislustjóra, þegar hann kallaði Þóri Hergeirsson upp á svið og viðstaddir risu úr sætum og hylltu afreksþjálfarann frá Selfossi.