Vel mætt á þing UMSE
Góð mæting var á ársþing Ungmennsambands Eyjafjarðar (UMSE) þegar það fór fram á fimmtudag í síðustu viku. Fulltrúar aðildarfélaga voru 27 talsins, sem er á pari við undanfarin ár.
Þingforseti var Árni Arnsteinsson, fyrrverandi formaður UMSE. Nokkrar tillögur lágu fyrir þinginu og vöktu þær málefnalegar og gagnlegar umræður. Flestar tillögurnar voru samþykktar í kjölfarið.
Meðal samþykktra tillagna var hvatningartillaga frá stjórn UMSE til aðildarfélaga um að sækja um viðurkenningu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem Fyrirmyndarfélög. UMSE er sjálft skilgreint sem Fyrirmyndarhérað og vill styðja við markvissa gæðavinnu aðildarfélaganna.
Reikningar sambandsins sýndu hagnað á síðasta ári og voru þeir samþykktir samhljóða, líkt og ný fjárhagsáætlun sem einnig gerir ráð fyrir jákvæðri afkomu á komandi ári.
Fram kom að verkefnin framundan eru fjölbreytt. Þar á meðal er Landsmót UMFÍ 50+, sem verður haldið í Hrafnagilshverfi, á Dalvík og Akureyri síðustu helgina í júní.
Þóra Pétursdóttir, svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Norðurlandi eystra, sat þingið ásamt Viðari Sigurjónssyni, sérfræðingi á stjórnsýslusviði ÍSÍ.