Fara á efnissvæði
10. maí 2026

„Við erum orðin geysilega spennt fyrir mótinu“

Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hrafnagilshverfi, Dalvík og Akureyri síðustu helgina í júlí. Haukur Valtýsson er formaður framkvæmdanefndar mótsins. Hann býst við afar góðri mætingu fólks sem hitti þar gamla mótherja af íþróttavellinum. 

„Við erum geysilega spennt fyrir mótinu og eigum von á góðri þátttöku. Við hvetjum allt fólk sem hefur gaman af því að hreyfa sig til að koma og taka þátt,“ segir Haukur Valtýsson, formaður framkvæmdanefndar Landsmóts UMFÍ 50+. Mótið verður að þessu sinni haldið í Eyjafjarðarsveit í samstarfi við Ungmennasamband Eyjafjarðarsveitar (UMSE) og sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit. Þetta er fyrsta skiptið sem mótið er haldið á svæðinu.  

Langfjölmennustu greinar mótsins eru boccía og ringó og er íþróttahúsið í Hrafnagilshverfi of lítið fyrir þær. Af þeim sökum fer keppni í þeim fram í Íþróttahöllinni á Akureyri, golfið verður á Dalvík en flestar greinar í Hrafnagilshverfi. Reiknað er með liðum í ringó frá Akureyri, nokkrum liðum frá Suðurlandi og úr Borgarbyggð. Löng hefð er líka fyrir ringói í Kópavogi og má því búast við fjörugri og spennandi móti eins og reyndar alltaf í kringum greinina á landsmótinu. 

Landsmót UMFÍ 50+ hefur verið haldið frá árinu 2011 þegar það fór fram á Hvammstanga. Þar hittast gamlar kempur sem tókust á á íþróttamótum á árum áður en líka hresst fólk fimmtugt og eldra sem hefur gaman af því að hreyfa sig og skemmta sér í hressilegri keppni við vini og kunningja.

Mótið er aldrei haldið á sama stað heldur flakkar um landið og virkjar því fólk til að uppgötva nýjar greinar.

 

18 greinar í boði – og meira til!

Keppt verður í 18 greinum á mótinu í Eyjafjarðarsveit. Auk ringó og boccía verður keppt í götuhjólreiðum, sundi, golfi, pokavarpi, pílukasti, frjálsum íþróttum og meira að segja pönnukökubakstri og stígvélakasti – en síðasttöldu greinarnar eru fyrir löngu orðnar landsþekktar og gríðarlega vinsælar.
Mótið hefst föstudaginn 26. júní með keppni í boccía, ringó og götuhjólreiðum. Það verður sett í Íþróttahöllinni á Akureyri klukkan 17:00 á milli greina.

 

Ætlaði í frí

Hauk þekkja margir í íþróttahreyfingunni. Hann er stoltur af því að vera þekktur fyrir þátttöku sína í glíma en mest í blakheiminum, bæði sem iðkandi og þjálfari um árabil. Hann sat í stjórn UMFÍ í áratug, þar af sex sem farsæll formaður. Haukur viðurkennir reyndar að hann hafi ekki ætlað að verða formaður nefndar mótsins. Þvert á móti hafi hann ætlað að slaka á og njóta afmælisins en hann fagnar sjötugsafmæli sama dag og mótið verður sett á Akureyri.

„Ég hélt að ég væri kominn í frí en svo gat ég auðvitað ekki skorast undan þessu,“ segir Haukur, sem jafnframt situr í íþróttanefnd ríkisins fyrir hönd UMFÍ. Nefndin veitir mennta- og barnamálaráðuneytinu, sem fer með íþróttamál, ráðgjöf í íþróttum, gerir tillögur um fjárframlög til íþróttamála og sér um úthlutun úr íþróttasjóði, samkvæmt íþróttalögum. 

Haukur segir undirbúning mótsins ganga afar vel:

„Fólk hefur gaman af því að njóta lífsins í hreyfingu og þátttöku í keppnum og hlakkar til að koma og hitta gamla vini og kunningja. Þetta er svo heilbrigð skemmtun og fólk er spennt fyrir því að hreyfa sig saman í góða veðrinu hér fyrir norðan.“

Haukur bendir á að mótið sé ekki aðeins fyrir fólk sem verður 50 ára á árinu og eldra. Brennibolti sé sem dæmi grein fyrir 20 ára og eldri.

„Á sunnudegi mótsins verður boðið upp á alls konar kynningar á ýmsum íþróttagreinum. Öllum sem vilja er velkomið að koma í Hrafnagilshverfið og skoða fjölda greina, prófa göngufótbolta og ýmislegt meira. Sama dag verður keppt í pönnukökubakstri og stígvélakasti, tveimur mjög vinsælum greinum sem alltaf vekja mikla athygli. Það er upplagt að kíkja á mótið, prófa nokkrar greinar og fylgjast með keppni í skemmtilegum greinum,“ bendir Haukur á.

„Ég hvet allt fólk sem hefur gaman af því að hreyfa sig að kynna sér greinar mótsins. Þar er svo margt í boði og pottþétt að allir finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Haukur og hampar öllu því góða fólki sem starfar með honum í framkvæmdanefndinni að undirbúningi mótsins í Hrafnagilshverfi, Dalvík og á Akureyri.

 

Skráning opnar 15. maí!

Þau sem hafa tekið þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ vita hversu skemmtilegt það er og margir bíða eflaust óþreyjufullir eftir því að komast á völlinn. Stutt er í opnað verður fyrir skráningu en það verður gert föstudaginn 15. maí. 

Þátttökugjald er aðeins 6.000 krónur og er fyrir það hægt að taka þátt í öllum greinum mótsins.

Svona skráir þú þig:
Þegar greiðslu á þátttökugjaldi er lokið er hægt að skrá sig í einstakar keppnisgreinar. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega til þess að taka þátt í opnum greinum, bara mæta og skemmta sér með fjölskyldu og vinum! 

Greitt er sérstaklega fyrir miða á matar- og skemmtikvöld sem fram fer laugardagskvöldið 27. júní á Vitanum á Akureyri. Húsið verður opnað kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00. Að loknu borðhaldi verður dansað.
Matar- og skemmtikvöldið hefur verið afar vinsælt og færri komist að en vilja. Það er því um að gera að kaupa miða um leið og þátttaka á mótið er staðfest. Á matar- og skemmtikvöldið kostar 6.400 krónur.

Muna: Skráning á Landsmót UMFÍ 50+ verður opnuð föstudaginn 15. maí næstkomandi á umfi.is