Fara á efnissvæði
07. maí 2026

Vilt þú efla íþróttastarf á Norðurlandi eystra?

ÍSÍ og UMFÍ leita að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi í starf svæðisfulltrúa. Svæðisstöðvar íþróttahéraða hófu starfsemi í ágúst 2024 og skiptast í átta svæði hringinn í kringum landið.

Tveir svæðisfulltrúar vinna að eflingu íþróttastarfs á hverju svæði ásamt því að vinna að sameiginlegum verkefnum í öflugu teymi 16 svæðisfulltrúa. Starfsemi svæðisstöðva byggir á sjálfstæðum vinnubrögðum og drifkrafti þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.

Staðsetning starfsins er á sambandssvæði eftirfarandi íþróttahéraða HSÞ, ÍBA, UÍF, UMSE.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar og stjórnvalda í íþróttamálum.
  • Efling íþróttastarfs á svæðinu með áherslu á þátttöku barna og ungmenna.
  • Auka tækifæri og þátttöku barna og ungmenna með stuðningsþarfir, af efnaminni heimilum og af erlendum tungumála- og menningarbakgrunn í íþróttastarfi.
  • Skipulagning og stýring verkefna.
  • Þróun og hugmyndavinna.
  • Samvinna með íþróttahéruðunum á Norðurlandi eystra, aðildarfélögum og öðrum hagaðilum.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi.
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi.
  • Frumkvæði og drifkraftur.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.

Frekari upplýsingar um Svæðisstöðvar íþróttahéraða er að finna á heimsíðu verkefnisins siu.is.

Smelltu hér og kynntu þér starfið og verkefnin

Umsóknarfrestur er til og með 15. mai næstkomandi.

 

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Hér að ofan má sjá mynd af svæðisfulltrúum íþróttahreyfingarinnar, þegar hópurinn hittist á vinnufundi á síðasta ári. 

 

Ítarlegri upplýsingar um starfið veita framkvæmdastjórar ÍSÍ og UMFÍ

Andri Stefánsson (andri@isi.is) og Auður Inga Þorsteinsdóttir (audur@umfi.is)

 

Hér er auglýsingin á Alfreð og hægt að sækja um þar:

Sækja um starf