Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Frisbígolf

Hvernig væri að prófa? Engin skráning fyrirfram, bara mæta og taka þátt.

Aldurs- og kynjaflokkar

Einn kynjaflokkur
11 - 14 ára.
15 - 18 ára.

 

Keppnisfyrirkomulag

Keppendur þurfa ekki að skrá sig fyrirfram. Hægt er að mæta á keppnisstað og taka þátt.
Spilað verður 1 x 9 holur og munu úrslit ráðast að því loknu.
Hægt verður að fá lánaða diska á staðnum en keppendur geta að sjálfsögðu komið með sína eigin diska.

 

Reglur

  • Folf er spilað líkt og hefðbundið golf nema með frisbídiskum.
  • Takmarkið er að kasta disknum í körfuna í sem fæstum skotum og sá vinnur sem þarf fæst skot. Annað skot er tekið þar sem diskur lendir eftir fyrsta skot og sá á fyrst að gera sem lengst er frá körfu.
  • Tillitssemi er stór hluti af leiknum og því er sanngjarnt að mótspilari þinn fái að kasta án truflunar, þar sama myndir þú vilja.
  • Ekki taka kast fyrr en þú ert viss um að flug disksins og lending trufli ekki hina spilarana.
  • Skot frá skotteigi verða að eiga sér stað á eða fyrir aftan ákveðna skotlínu. 
  • Ekki kasta fyrr en meðspilarar fyrir framan þig eru komnir úr skotfæri.
  • Takið fyrstu upphafsskot eftir fyrir fram ákveðinni röð og síðan fer röðin eftir skori síðustu brautar, sá spilari sem var með fæstu skotin tekur fyrstur upphafskot.
  • Diska á ávallt að skilja eftir þar sem þeir liggja og ekki taka upp fyrr en skot er tekið. 
  • Það kostar nokkra æfingu að staðsetja fætur rétt þegar kastað er.
  • Sá fótur sem þú setur þungann á í kastinu verður að vera eins nálægt skotstað og kostur er.
  • Hann má aldrei fara yfir skotlínu og ekki meira en 30 cm. fyrir aftan hana eða til hliðar.
  • Hinn fóturinn má vera hvar sem er svo fremi sem hann fari ekki nær körfunni en skotlínan er. 
  • Leyfilegt er að fylgja eftir skoti með því að stíga yfir skotlínu eftir að kast er tekið, nema þegar púttað er þ.e. innan 10 metra frá körfu.
  • Ekki er leyfilegt að falla fram fyrir sig til að halda jafnvægi í pútti.
  • Ef diskurinn festist í tré eða runna þá er diskurinn færður og settur á jörðina nákvæmlega fyrir neðan þann stað sem hann sat fastur og kastað er þaðan. 
  • Ef diskurinn lendir á stað sem er ekki hægt að kasta frá er hann færður út úr þeim aðstæðum, þó ekki nær körfu, og kastað þaðan.