Almennar upplýsingar
Aldurs- og kynjaflokkar
- 11 - 12 ára piltar
- 13 - 14 ára piltar
- 15 - 16 ára piltar
- 17 - 18 ára piltar
- 11 - 12 ára stúlkur
- 13 - 14 ára stúlkur
- 15 - 16 ára stúlkur
- 17 - 18 ára stúlkur
Keppnisfyrirkomulag / reglur
- Fjórir leikmenn eru inn á vellinum hverju sinni en varamenn geta verið allt að fjórir talsins.
- Spilað er á 8 völlum.
- Allir leikir eru 1 x 10 mín. Hraðaskipting eftir 5 mín.
- Lengd leikja gæti þó verið endurskoðuð eftir þátttöku.
- Ef liðin eru jöfn eftir 10 mín. þá er spilað úrslitastig.
- Ef lið mætir ekki til leiks innan þriggja mínútna þá tapast leikurinn 10-0.
- Mæti hvorugt lið til leiks er kastað upp á það hvort liðið vinnur og hvort tapar.
- Hvert lið má vera skipað 6 leikmönnum en aðeins 4 eru inn á í einu.
Reglur
- 3 snertingar í mesta lagi á lið.
- Sami leikmaður má ekki gefa upp allan tímann.
- Það er bannað að snerta net og stíga yfir línu undir neti.
- Það má skipta þegar liðið vill, en passið að vera aldrei 5 inn á í einu.
Monrad kerfi
Á mótinu er leikið eftir svokölluðu Monrad kerfi sem gengur út á sjálfvirka geturöðun.
Í fyrstu umferð er liðum raðað saman handahófskennt og spila lið tiltekinn fjölda leikja á hverju móti.
Linkur verður sýnilegur þar sem hægt er að fylgjast með Monrad kerfinu til að vita hvar og hvenær næstu leikir eru.